Íþróttakennari – Öldutúnsskóli

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 26.04.2024

Umsóknarfrestur til: 10.05.2024

Tengiliður: valdimar.vidisson@oldutunsskoli.is

Öldutúnsskóli auglýsir eftir íþróttakennara

Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2024.

Í Öldutúnsskóla eru um 630 nemendur í 1. – 10. bekk.

Í Öldutúnsskóla er lögð áhersla á skapandi og gefandi námsumhverfi þar sem allir aðilar leitast við að gera námið í senn áhugavert og skemmtilegt. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda og fjölbreytta kennsluhætti. Rík áhersla er lögð á teymisvinnu.

Einkunnarorð skólans eru virðing, virkni og vellíðan og grundvallast starf skólans af þeim gildum. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og samkvæmt hugmyndafræði Olweusar gegn einelti og andfélagslegri hegðun. Skólinn leggur ríka áherslu á umhverfismál og hefur tekið á móti Grænfánanum fimm sinnum.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast almenna íþrótta- og sundkennslu á öllum stigum í samvinnu við skólastjórnendur og aðra kennara
  • Vinna að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf skal fylgja umsókn)
  • Áhugi og/eða reynsla af íþrótta- og sundkennslu
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Mjög góð íslenskukunnátta

Ef þetta er eitthvað sem vekur áhuga þinn hafðu samband við okkur.

Nánari upplýsingar veita Valdimar Víðisson, skólastjóri, í síma: 664-5898, valdimar.vidisson@oldutunsskoli.is og Margrét Sverrisdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 664-5894, margret.sverrisdottir@oldutunsskoli.is

Laun eru skv. kjarasamningi Samband íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Umsóknarfrestur er til og með 10. maí 2024.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Önnur störf

Starfsheiti Umsóknarfrestur Frestur
Sérkennari í sérdeild – Öldutúnsskóli
Umsjónarkennari á miðstigi – Öldutúnsskóli
Umsjónarkennari í yngri deild – Skarðshlíðarskóli
Þroskaþjálfi – Skarðshlíðarskóli
Heimilisfræðikennari – Öldutúnsskóli
Íþróttakennari – Öldutúnsskóli
Íþróttakennari – Hraunvallaskóli
Deildarstjóri í tómstundamiðstöð – Hraunvallaskóli
Forfallakennari – Engidalsskóli
Aðstoðardeildarstjóri tómstundamiðstöðvar- Félagsmiðstöðin Ásinn
Aðstoðardeildarstjóri tómstundamiðstöðvar- Frístundaheimilið Tröllaheimar
Stuðningsfulltrúi í Berg – Setbergsskóli
Karlkyns stuðningsfulltrúi – Setbergsskóli
Setbergsskóli auglýsir eftir leiklistarkennara – afleysing skólaárið 2024-2025
Heimilisfræðikennari – Engidalsskóli
Umsjónarkennari á yngsta og miðstigi – Hraunvallaskóli
Tómstundaleiðbeinendur í Mosann – Hraunvallaskóli
Kennsla í hönnun og smíði í Setbergsskóla – afleysing skólaárið 2024 – 2025
Íþróttakennari – Setbergsskóli
Kennari í sérdeild – Lækjarskóli
Þroskaþjálfi – Hraunvallaskóli
Deildarstjóri á unglingastigi – Hraunvallaskóli
Umsjónarkennari í miðdeild – Setbergsskóli