Deildarstjóri – Skarðhlíðarleikskóli

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 27.05.2022

Umsóknarfrestur til: 13.05.2024

Tengiliður: Berglind Kristjánsdóttir

Skarðshlíðarleikskóli auglýsir eftir metnaðarfullum deildarstjóra í 100% starf. 

Skarðshlíðarleikskóli er nýlegur fjögurra deilda skóli, staðsettur að Hádegisskarði 1. í einungis 4 mínútna fjarlægð við Reykjanesbraut um Kaldárselsveg.

Hugmyndafræðilegur grunnur skólans tekur mið af lærdómssamfélagi (e. Professional Learning Community) þar sem allir læra saman og áhersla er lögð á virka þátttöku við að þróa öflugt skólastarf. Við leggjum áherslu á lýðræði, frumkvæði og lífsgleði í daglegum samskiptum og að auka leikni og færni barnanna í gegnum leikinn. Stefna skólans tekur mið af Fjölgreindakenningu Howards Gardners og Uppeldi til ábyrgðar.

Lögð er áhersla á lýðræði, frumkvæði, hlýju og lífsgleði í daglegum samskiptum og að auka leikni og færni barnanna í gegnum leikinn. Við viljum skapa góðan starfsanda þar sem allir fá að njóta sín og leggja sitt af mörkum.

Þar sem þetta er nýr leikskólinn færð þú gullið tækifæri til að taka þátt í að móta námskrá leikskólans, búa til hefðir og starfa í nánu samstarfi við grunnskóla, tónmenntaskóla, íþróttahús og bókasafn, því við erum öll í sömu byggingunni. 

Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk. Starfsfólk í Félagi leikskólakennara og Þroskaþjálfafélaginu hefur kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir starfsmenn taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrarfrí er í grunnskólum, í dymbilviku og með lengri fjarveru á sumrin.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Vinnur að og ber ábyrgð á uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra
  • Ber ábyrgð á stjórnun, skipulagningu, framkvæmd og mati á faglegu starfi deildarinnar
  • Annast daglega verkstjórn á deildinni og ber ábyrgð á miðlun upplýsinga
  • Ber ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá og að öll börn fái kennslu og umönnun við hæfi
  • Ber ábyrgð á foreldrasamvinnu
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

 Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf sem kennari (Leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Reynsla af starfi deildarstjóra í leikskóla er æskileg 
  • Færni í samskiptum og samstarfshæfileikar
  • Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og faglegur metnaður
  • Góð tölvukunnátta
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði

Fríðindi í starfi:

  • Heilsuræktarstyrkur
  • Samgöngustyrkur 
  • 75% afsláttur af leikskólagjöldum
  • Forgangur á leikskóla
  • Bókasafnskort
  • Sundkort

Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Fáist ekki starfsmenn með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um, þó þeir hafi ekki kennsluréttindi.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Félag leikskólakennara.

Nánari upplýsingar um starfið veitir <a href="mailto:Berglind%20Kristjánsdóttir%20″>Berglind Kristjánsdóttir leikskólastjóri í síma 527 7380

Umsóknarfrestur er til 13. maí 2024

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.

 

Önnur störf