Kennsla í hönnun og smíði í Setbergsskóla – afleysing skólaárið 2024 – 2025

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 02.05.2024

Umsóknarfrestur til: 16.05.2024

Tengiliður: maria@setbergsskoli.is

Setbergsskóli auglýsir eftir kennara í hönnun og smíði skólaárið 2024 – 2025 í 100% starfshlutfall.

Setbergsskóli var stofnaður árið 1989 og eru nemendur um 430 talsins auk þess sem við skólann er starfrækt sérdeild fyrir börn með einhverfu. Skólinn er staðsettur í fallegu umhverfi sem býður upp á mikla möguleika til útiveru. 

Góður starfsandi og jákvæð samskipti einkenna starfmannahópinn og er vellíðan nemenda og starfsfólks ávallt höfð að leiðarljósi. Við skólann er unnið metnaðarfullt starf með sérstakri áherslu á fjölbreytt námsumhverfi, læsi, sköpun, lýðræði og uppbyggjandi endurgjöf. Allir nemendur í 5. – 10. bekk hafa spjaldtölvur til umráða og yngri nemendur hafa einnig aðgang að slíkum tækjum. 

Einkunnarorð skólans eru virðing, víðsýni og vellíðan og grundvallast starf skólans á þeim gildum. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og samkvæmt hugmyndafræði Olweusar gegn einelti og andfélagslegri hegðun. Nánari upplýsingar um skólann og það öfluga starf sem þar er unnið er að finna á heimasíðu skólans, setbergsskoli.is.

Helstu verkefni og ábyrgð:

• Annast kennslu í hönnun og smíði í samráði við skólastjórnendur, aðra kennara og foreldra

• Gerð námsáætlana til nánari útfærslu námskrár fyrir sína námsgrein.

• Vinna að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk

• Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk

• Vinna eftir stefnu skólans í eineltis- og forvarnarmálum

• Önnur verkefni skv. starfslýsingu

Menntunar – og hæfnikröfur:

• Leyfisbréf á til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn) 

• Fagleg þekking á sviði hönnunar- og smíðakennslu

• Reynsla af sambærilegu starfi kostur

• Jákvæðni og áhugi á að starfa með börnum og ungmennum í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.

• Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni.

• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.

• Stundvísi og samviskusemi

• Góð íslenskukunnátta

Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.

Skilyrði fyrir ráðningu er hreint sakavottorð.

Umsóknarfrestur er til og með 16. maí 2024.

Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2024.

Nánari upplýsingar um starfið veitir María Pálmadóttir, skólastjóri, í síma 5651011 eða í gegnum netfangið maria@setbergsskoli.is.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ. 

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Önnur störf