Tómstundaleiðbeinendur í Mosann – Hraunvallaskóli

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 02.05.2024

Umsóknarfrestur til: 16.05.2024

Tengiliður: Lars J. Imsland

Hraunvallskóli óskar eftir að ráða tómstundaleiðbeinendur í Mosann sem er tómstundamiðstöð skólans skólaárið 2024-2025. Í tómstundamiðstöðinni er félagsmiðstöð fyrir 10-16 ára börn.

Um er að ræða c.a 25% starfshlutfall þar sem unnið er frá 16:45 til 22:15, virka daga. Hentar því vel fyrir þá sem eru að leita sér að aukavinnu næsta vetur. Gert er ráð fyrir að starfsmenn hefji störf 23. ágúst.

 Helstu verkefni og ábyrgð:

·        Tekur þátt í að skipuleggja og móta fjölbreytta dagskrá

·        Mikil samskipti og samvinna við börn og unglinga

·        Skapa jákvætt andrúmsloft sem byggir á virðingu og lýðræðislegum vinnubrögðum

·        Stuðningur við frumkvæði barna og unglinga, tryggir öryggi þeirra og vellíðan

·        Vinnur að upplýsingaflæði til barna, foreldra og samstarfsaðila

·        Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni og samkvæmt starfslýsingu tómstundaleiðbeinanda

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af starfi með börnum og unglingum
  • Fjölbreytt áhugasvið sem nýtist í starfi félagsmiðstöðva er kostur
  • Íslenskukunnátta
  • Stundvísi og skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  •  Almenn tölvukunnátta

Skilyrði er að viðkomandi geti framvísað hreinu sakavottorði fyrir ráðningu. 

Nánari upplýsingar um starfið veitir Lars J. Imsland skólastjóri, lars@hraunvallaskoli.is , Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir aðstoðarskólastjóri gudbjorgn@hraunvallaskoli.is og Sara Pálmadóttir deildarstjóri Tómstundamiðstöðvar sarap@hafnarfjordur.is eða í síma 590 2800.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Umsóknarfrestur er til og með 16. maí 2024.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika

Önnur störf