Kennari í íslensku sem annað mál – Setbergsskóli

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 15.04.2024

Umsóknarfrestur til: 29.04.2024

Tengiliður: María Pálmadóttir

Setbergsskóli óskar eftir að ráða kennara í íslensku sem annað mál í 100% starfshlutfall.

Setbergsskóli var stofnaður árið 1989 og eru nemendur um 430 auk þess sem þar er starfrækt sérdeild fyrir börn með einhverfu. Setbergsskóli er staðsettur í fallegu umhverfi sem býður upp á mikla möguleika til útiveru. Í skólanum er unnið metnaðarfullt starf með sérstakri áherslu á sköpun, fjölbreytt námsumhverfi, vellíðan, læsi, lýðræði og uppbyggjandi endurgjöf. Allir nemendur í 5. – 10. bekk hafa spjaldtölvur til umráða og yngri nemendur hafa einnig aðgang að slíkum tækjum. Einkunnarorð skólans eru virðing, víðsýni og vellíðan og grundvallast starf skólans á þeim gildum. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og samkvæmt hugmyndafræði Olweusar gegn einelti og andfélagslegri hegðun.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast kennslu nemenda með íslensku sem annað tungumál í samvinnu við skólastjórnendur, aðra kennara og foreldra
  • Vinna að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf skal fylgja umsókn)
  • Reynsla af kennslu í grunnskóla og/eða íslensku sem annað tungumál æskileg
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Mjög góð íslenskukunnátta

Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar um starfið veitir María Pálmadóttir, skólastjóri, í síma 5651011 eða í gegnum netfangið maria@setbergsskoli.is

Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni http://www.setbergsskoli.is

Umsóknarfrestur er til og með 29. apríl 2024.

Greinargóð ferilskrá og starfsleyfi fylgi umsókn.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Önnur störf