Leikskólastjóri – Víðivellir

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 09.04.2024

Umsóknarfrestur til: 23.04.2024

Tengiliður: Árný S Steindórsdóttir

Öflugur og faglegur leiðtogi óskast í stöðu leikskólastjóra í leikskólann Víðivelli. Leitað er eftir einstaklingi sem býr yfir góðum samstarfshæfileikum, er lausnamiðaður og hefur skýra framtíðarsýn um að viðhalda metnaðarfullu leikskólastarfi. 

Leikskólinn Víðivellir er fyrsti leikskólinn sem Hafnarfjarðarbær byggði og tók til starfa árið 1977. Víðivellir er fjögurra deilda leikskóli. Frá upphafi hefur verið lögð áhersla á inngildandi leikskólastarf. Í skólanum er góð aðstaða og sérþekking á að mæta þörfum margbreytilegs barnahóps. Leikskólinn er staðsettur við skemmtileg útivistarsvæði, stutt er í fjöru og hraun sem auðgar útikennslu skólans.

Á Víðivöllum starfar áhugasamur og metnaðarfullur hópur leikskólakennara, þroskaþjálfa, starfsmanna með aðra háskólamenntun og leikskóla- og frístundaliða. Lögð er sérstök áhersla á öfluga og samþætta þjónustu við þau börn sem þurfa á að halda og fjölskyldur þeirra. Skólinn er í nánu samstarfi við sjúkraþjálfa, iðjuþjálfa, talmeinafræðinga og aðra sérfræðinga. Lagt er mikið upp úr því að hvert barn fái að njóta sín á sínum forsendum í barnahópnum.

Í Hafnarfirði eru íbúar um 30.000, sveitarfélagið rekur 17 leikskóla og er með þjónustusamning við einn til viðbótar. Hafnarfjarðarbær er heilsueflandi vinnustaður og styður við heilsueflingu starfsmanna sinna með fjölbreyttum hætti.

Markmið mennta- og lýðheilsusviðs er að vera faglegt og framsækið forystuafl í mennta-, æskulýðs- og íþróttamálum og veita börnum og fjölskyldum í bænum heildstæða þjónustu og stuðla að samfellu í öllu starfi sem hefur velferð íbúa að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla og stefnu viðkomandi sveitarfélags
  • Meginhlutverk leikskólastjóra er að stýra og bera ábyrgð á daglegri starfsemi og rekstri leikskólans
  • Ber rekstrarlega ábyrgð á að rekstur leikskólans sé innan ramma fjárhagsáætlunar
  • Sér um ráðningar starfsmanna, gerð ráðningarsamninga, vinnuskýrslna, skipuleggur vinnutíma starfsmanna og vinnutilhögun
  • Veitir leikskólanum faglega forystu á sviði kennslu og þróunar í skólastarfi
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni 

 

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar- og/eða menntunarfræða
  • Stjórnunarreynsla og víðtæk þekking/reynsla af leikskólastarfi
  • Leiðtogafærni
  • Áhugi á skólaþróun og faglegur metnaður
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og jákvætt viðmót
  • Þekking á rekstri og opinberri stjórnsýslu
  • Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði í starfi
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Góð tölvufærni og þekking á nauðsynlegum kerfum

 Nánari upplýsingar veitir Árný S Steindórsdóttir, deildarstjóri leikskólamála, arnyst@hafnarfjordur.is

 

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ

 Umsóknarfrestur er til og með 23. apríl 2024

Umsókn um starfið þarf að fylgja greinagóð starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, fyrri störfum umsækjanda, menntun, stjórnunarreynslu og hæfni til að sinna starfi leikskólastjóra ásamt afriti af prófskírteini.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynja í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins

 

Önnur störf