Sérkennari í sérdeild – Öldutúnsskóli

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 10.04.2024

Umsóknarfrestur til: 29.04.2024

Tengiliður: Valdimar Víðisson

Öldutúnsskóli auglýsir eftir sérkennara í sérdeild.

Í Öldutúnsskóla eru um 630 nemendur í 1. – 10. bekk.

Í Öldutúnsskóla er sérdeild fyrir nemendur á unglingastigi með væga þroskaröskun og er opin öllum skólahverfum bæjarins. Deildin starfar samkvæmt lögum um grunnskóla en þar er kveðið á um að nemendur með sérþarfir fái viðeigandi kennslu og stuðning í heimaskóla. Allir nemendur sérdeildarinnar eru skráðir í almenna bekki skólans. Sá bekkur sem nemandinn er skráður í er í daglegu tali nefndur tengslabekkur og taka nemendur þátt í bekkjarstarfinu að einhverju marki. Einstaklingsnámskrá er gerð fyrir nemendur í upphafi skólaárs og endurmetin við annarskil. Við reglulegt mat á námi nemenda eru framfarir metnar og tekið er tillit til breytinga við gerð nýrrar áætlunar.

Í Öldutúnsskóla er lögð áhersla á skapandi og gefandi námsumhverfi þar sem allir aðilar leitast við að gera námið í senn áhugavert og skemmtilegt. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda og fjölbreytta kennsluhætti. Rík áherslu er lögð á teymisvinnu.

Einkunnarorð skólans eru virðing, virkni og vellíðan og grundvallast starf skólans af þeim gildum. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og samkvæmt hugmyndafræði Olweusar gegn einelti og andfélagslegri hegðun. Skólinn leggur ríka áherslu á umhverfismál og hefur tekið á móti Grænfánanum fimm sinnum.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast almenna sérkennslu í sérdeild í samvinnu við skólastjórnendur, aðra kennara og foreldra
  • Vinna að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf skal fylgja umsókn)
  • Áhugi og/eða reynsla af sérkennslu.
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Mjög góð íslenskukunnátta

Ef þetta er eitthvað sem vekur áhuga þinn hafðu samband við okkur.

Nánari upplýsingar veita Valdimar Víðisson, skólastjóri, í síma: 664-5898, valdimar.vidisson@oldutunsskoli.is

Umsóknarfrestur er til 29. apríl nk.

Greinargóð ferilsskrá fylgi umsókn.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.

 

Önnur störf