Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk í sumarafleysingu- Steinahlíð

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 23.02.2024

Umsóknarfrestur til: 23.04.2024

Tengiliður: Kristín Ólafsdóttir

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öflugan starfsmann í lærdómsríkt starf á heimili fatlaðs fólks, staðsett í Steinahlíð. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar. 

Spennandi og skemmtilegt starf, með fjölbreyttum verkefnum í vaktavinnu. Viðkomandi þarf að geta unnið helgar, morgun, kvöld og næturvaktir. Starfshlutfall eftir samkomulagi. 

 

 Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veita íbúum stuðning við athafnir daglegs lífs
  • Fylgja þjónustuáætlunum og verklagsreglum
  • Virkja íbúa til þátttöku í samfélaginu og tómstundum
  • Hafa gaman í vinnunni og vera öðrum fyrirmynd
  • Almenn heimilisstörf og eldamennska
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
  • Reynsla af sambærilegu starfi kostur
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði
  • Ágætis tölvukunnátta 
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Framtakssemi og samviskusemi
  • Sjálfstæð vinnubrögð og sveigjanleiki í starfi
  • Líkamleg geta til þess að sinna krefjandi verkefnum á vinnustað

 

Æskilegt er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri, en skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Frekari upplýsingar um starfið er hægt að nálgast hjá Ingibjörgu Ólafsdóttur yfirþroskaþjálfi í síma: 565-5344 , netfang: ingibjorgo@hafnarfjordur.is

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Umsóknarfrestur er til og með 23.04.2024

 

Samkvæmt jafnréttisstefnu Hafnarfjarðar eru karlar jafnt sem konur hvattir til að sækja um starfið. 

Önnur störf