Stöðugjöld fyrir að leggja ólöglega

Fréttir

Bílastæðasjóður Hafnarfjarðar hefur álagningu stöðugjalda á ökutæki sem lagt er ólöglega í bænum um miðjan mánuðinn.

Gjald verður lagt á fyrir að leggja ólöglega

Bílastæðasjóður Hafnarfjarðar hefur álagningu stöðugjalda á ökutæki sem lagt er ólöglega í bænum um miðjan mánuðinn. Undanfarnar vikur hafa ökumenn fengið aðvörunarmiða á bíla sína til að vekja athygli á breyttu eftirliti. Aðvörunin gefur fólki tækifæri til að aðlaga sig nýjum áherslum í umferðarmálum bæjarins.

Markmið aðgerðanna er að bæta umferðaröryggi, tryggja betra aðgengi fyrir gangandi vegfarendur, viðbragðsaðila og þjónustu, auk þess að stuðla að auknu flæði í umferðinni fyrir íbúa og gesti Hafnarfjarðar.

Sérstök áhersla verður lögð á eftirlit við gangstéttir, gönguleiðir, fatlaðastæði, biðstöðvar og önnur svæði þar sem ólögleg lagning getur skapað hættu eða hindrað aðgengi.

Bílastæðasjóður Hafnarfjarðar hvetur ökumenn til að kynna sér gildandi reglur um hvernig leggja á ökutækjum og sýna tillitssemi í umferðinni. Með samstilltu átaki er hægt að skapa öruggara, snyrtilegra og aðgengilegra umhverfi fyrir alla.

Telji ökumenn að álagt stöðubrotsgjald eigi ekki rétt á sér skulu þeir senda andmæli í gegnum heimasíðu Bílastæðasjóðs Hafnarfjarðar.

Ökumenn eru hvattir til að fylgja þeim leiðbeiningum sem þar koma fram við skil á andmælum og öðrum erindum vegna stöðubrota.

Ábendingagátt