Tíundu hátíð Hjarta Hafnarfjarðar lokið
Frágangur og svo allt í sinn vanagang. Bæjarhátíðinni Hjarta Hafnarfjarðar er lokið í ár. Allt gekk að óskum og minningarbanki margra geymir nú þessar frábæru stundir.
Hjarta Hafnarfjarðar í 10 ár
„Dásamlegt Hjarta í ár,“ segir Páll Eyjólfsson, rekstrarstjóri Bæjarbíós. „Við þökkum fyrir að hafa haldið í við árið í fyrra; nú í rigningarsamasta júlímánuði í 40 ár miðað við besta sumar í fimmtíu ár í fyrra.“
Unnið hefur verið hörðum höndum að því í dag að taka niður allan búnað og græjur sem héldu utan um bæjarhátíðina í ár. Sex helgar að baki, yfir 60 þúsund heimsóknir. Gestir áttu frábæra stund hér í Hjartanu. Bílastæðin verða aftur tekin í notkun á fimmtudag.
„Við erum ákaflega þakklát,“ segir Páll. Agnar Hermannsson, framkvæmdastjóri hátíðarinnar, tekur undir það. „Hér var biðröð fyrir opnun á hverjum einasta degi, nema laugardagana tvo þegar við opnuðum klukkan tvö. En þá var gaman að sjá fólk mæta áður en það fór heim í garðpartýið sitt.“
Agnar segist alltaf gaman að finna sjarmann sem einkenni hátíðina í heild sinni. „Hingað kemur breiður aldurshópur, sá elsti um áttrætt og yngsti gesturinn tvítugur.“ Síðustu tvær helgarnar hafi verið mest sóttar. „Mest voru þó 1200 manns í röð. Það var þegar Rottweiler voru að spila,“ segir hann.
Tvö þúsund voru inni á svæðinu þegar mest var hverju sinni. „Veðrið hefur mikið að segja. Nú var mikil rigning tvær helgar. Fólk kom samt og við bættum tveimur tjöldum við útisvæðið með sætum fyrir 400 manns.“
Hátíðin hefur vaxið og dafnað og var þessi sú tíunda. Hún hefur svo sannarlega fest sig í sessi. Hafnarfjarðarbær sendur þétt við bakið á bæjarhátíðinni. Samið hefur verið um stuðning við verkefnið allt til ársins 2030. Hátíðin er eitt af lykilmenningarverkefnum bæjarins.
Innilegar þakkir til allra sem komu á hátíðina – og þeirra sem komu að henni.