Trjágróður, garðaúrgangur og skjólveggir við lóðamörk
Nú minnum við íbúa á nokkur atriði sem vert er að hafa í huga varðandi trjágróður við lóðamörk, garðaúrgang og byggingu skjólveggja.
Hugum að gróðri að lóðamörkum – klippum og snyrtum
Trjágróður sem vex út fyrir lóðarmörk getur verið verið hamlandi og jafnvel skaðlegur fyrir gangandi, hjólandi eða akandi vegfarendur og getur skyggt á umferðarmerki, götuheiti og jafnvel lýsingu. Við hvetjum því öll til að snyrta og bæta slagi gróðurinn yfir grindverkið.
Það sem þarf að hafa í huga er að:
- Umferðarmerki séu sýnileg
- Gróður byrgi ekki götulýsingu
- Gangandi og hjólandi eigi greiða leið um gangstíga
- Þar sem vélsópar og snjóruðningstæki fara um má lágmarkshæð gróðurs yfir stígum ekki vera lægri en 2,8 metrar
- Yfir akbrautum má gróður ekki slúta niður fyrir 4,2 metra og gildir þessi hæðarregla einnig þar sem sorphirðubílar, slökkvilið og sjúkrabílar þurfa að komast eftir stétt eða stíg

Garðaúrgangur – gjaldfrjáls móttaka á Sorpu
Sorpa tekur endurgjaldslaust á móti garðaúrgangi frá einstaklingum á sínum endurvinnslustöðvum, í Hafnarfirði að Breiðhellu. Samkvæmt skilgreiningu Sorpu þá falla eftirfarandi undir flokkinn garðaúrgangur: illgresi, arfi, blómaafskurður,grænmeti, laufblöð, plöntuleifar og pottablóm.
Einnig er tekið gjaldfrjálst á móti trjábolum og trjágreinum, grasi og heyi en sérstakir gámar eru fyrir þessa flokka.
Athugið að í flokka má einingus fara ofangreind efni án aðskotahluta og annars efnis eins og plasts.