Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Hér er að finna upplýsingar um úrræði fyrir börn og fjölskyldur á vegum Hafnarfjarðarbæjar
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
16-24 ára Hafnfirðingar eru boðaðir á Ungmennaþing í Flensborg til að hafa áhrif á þjónustu tveggja nýrra ungmennahúsa. Stefnt er að því að bæta þjónustuna í stærra húsnæði.
„Ungt fólk þarf að hafa tilgang, eiga vini og vera partur af samfélagi,“ segir Geir Bjarnason, íþrótta- og tómstundafulltrúi Hafnarfjarðarbæjar, í Hafnfirskri æsku Fjarðarfrétta sem kom út í gær 12. september.
Tvö ný ungmennahús bíða í startholunum fyrir unga Hafnfirðinga. Annað þeirra er í gamla Lækjarskóla, Nýsköpunarsetrinu. Þar verður áhersla lögð á listir og sköpun. Dagvistun fyrir fötluð ungmenni, sem hafa lokið framhaldsskóla, verður svo sett upp á Selhellu 7, þar sem Brettafélag Hafnarfjarðar er einnig til húsa. Þar verður einnig hópa- og félagsstarf fyrir ólíka hópa á kvöldin.
„Þessi tvö hús taka við af Hamrinum,“ segir Geir og að blásið verði til sóknar. „Meira en helmingi meira pláss. Þjónustan verður fjölbreyttari og opnunartíminn samtals lengri,“ segir hann. „Já, það á að breyta þjónustunni, efla og gefa fleirum tækifæri á að taka þátt. Það tekur tíma að setja upp starfsemina í nýjum húsum og við viljum gera það rétt,“ segir Geir. Því verður blásið til Ungmennaþings þriðjudaginn 24. september í Flensborg kl. 17.
„Við ætlum að bjóða öllum ungmennum 16-24 ára á þingið. Við viljum heyra hvernig þau telja að þjónustan verði sem best.“ Starfshópur leggi nú línurnar, hitti forsvarsmenn Hins hússins og Mosans í Mosfellsbæ svo starfið verði sniðið að hópunum og nái einnig til jaðarhópa.
„Þetta unga fólk skiptir okkur máli,“ segir Geir og að einnig verði leitað til fatlaðra ungmenna og þeirra sem eru af erlendu bergi brotin og taki hugsanlega síður þátt á svona þingi. Verið sé að ráða starfsfólk og búist við að starfsemin hefjist í október.
„Já, við réðumst í breytingar og vinnum nú að því skýra markmiði að félagsstarf unga fólksins verði öflugra. Við ætlum að gera betur fyrir hafnfirsk ungmenni. Þessi þjónusta skiptir miklu máli, því ungt fólk þarf að hittast. Það þarf að berjast gegn einangrun og gefa þeim tækifæri á að læra og eflast saman,“ segir hann.
„Það skiptir svo miklu máli að vera ekki hrædd við breytingar. Við verðum að fylgja tíðarandanum. Þess vegna verða ungmennahúsin að vera á tánum og fylgja því sem er efst á baugi hverju sinni. Núna eiga þau til að mynda að ræða um ofbeldismenningu rétt eins og í skólunum og í félagsmiðstöðvunum,“ segir hann.
„Þegar ungt fólk hefur ekki aðstöðu til að skapa tónlist, þá er það okkar að hlaupa undir bagga, þegar þröngt er um atvinnulífið eigum við að bjóða störf. Þetta er markmiðið og afar mikilvægt að við höfum unga fólkið með okkur til að finna réttu lausnina hverju sinni,“ segir Geir.
„Ungmennahúsin eru aðstaða þar sem ungt fólk er þjálfað í samskiptum og félagsleg tengslum sem hjálpar þeim að fóta sig í lífinu. Það skiptir okkur því miklu máli að vinna hratt að því að opna húsin og það ætlum við að gera,“ segir Geir.
Víðavangshlaup Hafnarfjarðar fór fram Sumardaginn fyrsta eins og venjulega. Börnin kepptumst við og luku hlaupinu með glæsibrag.
Unnur Arna Jónsdóttir, eigandi Hugarfrelsis, mun veita öllum áhugasömum aukin verkfæri til að takast á við áskoranir tengdar skjátíma barna…
Arngunnur Ýr Gylfadóttir myndlistarkona er bæjarlistamaður Hafnarfjarðar árið 2025. Arngunnur Ýr hefur skapað sér gæfuríkan feril til áratuga. Verk hennar…
Tillaga að breyttu deiliskipulagi fyrir geymslusvæðið verður kynnt á kynningarfundi þriðjudaginn 13. maí milli klukkan 16:00-17:30 á Norðurhellu 2 í…
Stóri plokkdagurinn verður haldinn frá morgni til kvölds sunnudaginn 27. apríl.
Söngleikurinn Horfnu ævintýrapersónurnar í uppsetningu 3. bekkjar Áslandsskóla fékk frábærar viðtökur á uppskeruhátíð Menningardaga Áslandsskóla fyrir páska. Þessi árlega menningarhátíð…
Nú er að njóta. Heilsubærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga til að draga djúpt andann um páskana og njóta samveru og útiveru…
Sérstakt horn, sem kallast Réttindahorn og er hilla með bókum sem efla réttindavitund, er nú komið upp á Bókasafni Hafnarfjarðar.…
Sigrún Guðnadóttir, forstöðumaður Bókasafns Hafnarfjarðar, hefur verið sæmd heiðursorðu Póllands. Orðan er heiðursviðurkenning fyrir þjónustu við pólska samfélagið og Pólverja…
Allt kapp var lagt á að koma öllum ærslabelgjum heilsubæjarins Hafnarfjarðar í stand fyrir helgina enda skín sólin. Allir fimm…