Tvöfalt fleiri með skemmtiferðaskipum milli ára
Tæplega 12 þúsund farþegar og áhafnarmeðlimir komu til Hafnarfjarðar með farþegaskipum í sumar. Þeir voru nærri tvöfalt fleiri en árið á undan.
Skemmtiferðaskipin prýða höfnina okkar
Alls komu 32 farþegaskip til Hafnarfjarðarhafnar sumarið 2026, samanborið við 18 árið áður. Um borð voru samtals 7.488 farþegar og 4.466 áhafnarmeðlimir, eða 11.954 manns. Það er nær tvöfaldur fjöldi farþega og áhafnarmeðlima miðað við sumarið 2025, þegar þeir voru samtals 6.131. Þetta kemur fram í greinargerð um móttöku farþegaskipa í Hafnarfirði sumarið 2026
„Þetta er stærsta sumarið hjá okkur hingað til og það er ánægjulegt hvernig tekist hefur að gera Hafnarfjörð að eftirsóttum viðkomustað og heimahöfn fyrir þessi millistóru farþegaskip sem flest eru í hringsiglingum kringum landið,“ segir Lúðvík Geirsson hafnarstjóri.
Ein af heimahöfnum Ponant
Flestar komurnar voru á vegum franska skipafélagsins Ponant. Félagið hefur verið með heimahöfn sína í Hafnarfirði um árabil. Þrjú skip sigldu á vegum félagsins í sumar og átta sinnum voru tvö þeirra saman í höfn, og eitt skipti voru þau öll þrjú samtímis í höfn.
„Við höfum átt í mjög góðu samstarfi við Ponant og vilji er til að efla það enn frekar. Þetta eru fyrstu skipin á Íslandi sem voru landtengd við háspennu hérlendis,“ segir Lúðvík og að félagið vilji auka samvinnu við ferðaþjónustuna hér í bænum.
Eins og áður sagði er Hafnarfjarðarhöfn heimahöfn flestra þessara skipa. Þau eru að jafnaði tvo sólarhringa í höfn hverju sinni. „Farþegar koma fljúgandi til landsins og farþegaskipti eru á hafnarsvæðinu með tilheyrandi farangursafgreiðslu, vegabréfaeftirliti og tollþjónustu. Þá er sinnt viðhaldi og endurnýjun birgða í skipin,“ segir Lúðvík.
Nýta þjónustu í Hafnarfirði
Samkvæmt greinargerðinni nýttu farþegar og áhafnarmeðlimir sér meðal annars veitingastaði, verslanir, apótek og söfn í Hafnarfirði. „Nýtt þjónustuhús hafnarinnar á Suðurbakka nýttist mjög vel við móttöku skipanna og veitti gestum og starfsfólki aðstöðu á meðan skipin lágu við bryggju.“

Í greinargerðinni eru jafnframt nefnd tækifæri til að bæta gönguleiðina milli hafnar og miðbæjar, aðstöðu við móttöku stærri hópa og rafmagnstengingar fyrir skipin.
Nú þegar hafa um 20 skipakomur verið bókaðar fyrir sumarið 2027. „Samdráttur hefur verið í komum skipa víða á landinu á síðastliðnu sumri vegna óvissu um opinbera gjaldtöku og tolla- og skattamál. Það hefur tekið allt sumarið að fá endanlega niðurstöðu frá skattayfirvöldum og stjórnvöldum í þessum málum, sem hefur haft áhrif á bókanir til næstu ára,“ segir Lúðvík.
„En vonandi náum við að styrkja og efla þessar siglingar hingað enn frekar á komandi árum.“
Já, það er alveg ljóst að skemmtiferðaskipin gera fjörðinn fagra enn meira spennandi.
Hápunktar sumarsins 2026
- Þrjú skip samtímis Dagana 18.–21. júlí voru þrjú skip frá Ponant í höfn. Hátt í 2.000 farþegar og áhafnarmeðlimir voru á svæðinu og farþegaskipti fóru fram í öllum skipunum sama dag.
- Lúxusskip við Hvaleyrarbakka Lúxusskipið Envirma lagðist þar að tvisvar í ágúst. Sett voru upp móttökutjöld og önnur sérþjónusta í góðri samvinnu hafnarinnar og umboðsaðila.