Umhverfismennt og útikennsla

Fréttir

Elsta deild leikskólans á Norðurbergi hlaut í gær viðurkenningu fræðsluráðs Hafnarfjarðar árið 2016 fyrir fjölbreytt og áhugavert skólastarf fyrir elstu börn leikskólans. Áherslan í starfinu hefur verið á umhverfismennt og útikennslu. 

Fjölbreytt nám sem ýtir
undir þroska barna og tengingu þeirra við náttúruna

Elsta deild leikskólans
á Norðurbergi, Lundur, hlaut í gær viðurkenningu fræðsluráðs Hafnarfjarðar árið
2016 fyrir fjölbreytt og áhugavert skólastarf fyrir elstu börn leikskólans. Áherslan
í starfinu hefur verið á umhverfismennt og útikennslu. Starfsmenn hafa til
viðbótar útináminu þróað smiðjuvinnu þar sem boðið er upp á tónlist, textílmennt
og myndmennt.  

Útikennslan í Lundi er afar fjölbreytt. Unnið er með
börnunum í sérstökum verkefnum á lóðinni í kringum leikskólann auk þess sem
farið er markvisst í svokallaðar hraunferðir, fræðsluferðir í hraunið fyrir
framan Hrafnistu, þar sem börnin takast á við margvísleg verkefni sem taka til
fjölbreyttra námssviða. Á lóð leikskólans er opið eldstæði sem starfsmenn og
makar hlóðu fyrir nokkrum árum síðan. Eldstæðið er mikið notað við kennslu og
þykir frábær viðbót við aðra þá möguleika sem nærumhverfið hefur upp á að
bjóða.  Viðurkenningin til Lundar snýr að
því að börn þar fái fjölbreytt viðfangsefni í námi sem ýta undir þroska þeirra
almennt og ekki síður undir tengsl þeirra og virðingu við náttúruna. Það voru
Fanney D. Halldórsdóttir, sviðsstjóri fræðslu- og frístundaþjónustu
Hafnarfjarðarbæjar og Rósa Guðbjartsdóttir, formaður fræðsluráðs sem afhentu starfsmönnum
Norðurbergs viðurkenningu fræðsluráðs en tilnefning til viðurkenningar kom frá
foreldrum barna við skólann.

Lágmarka notkun á
plasti í daglegu lífi

Í byrjun júní fékk leikskólinn afhentan Grænfánann í sjöunda
skiptið. Grænfáninn er umhverfismerki sem nýtur virðingar um allan heim sem
tákn um góða umhverfismennt og umhverfisstefnu í skólum. Fánann fá skólar í
kjölfar verkefna sem eru ætluð til að efla vitund nemenda, kennara og
fjölskyldna um umhverfismál. Í vetur vann leikskólinn með þemað „Neysla/plastneysla“.
Markmið verkefnsins var að lágmarka alla notkun á plasti í daglegu lífi og gera
börn og fullorðna meðvitaðri um skaðsemi þess fyrir umhverfið.  Allir aldurshópar unnu í margskonar verkefnum
yfir veturinn.  Starfsmenn elstu barnanna
fóru í samstarf við foreldra og/eða forráðamenn með lítið heimaverkefni. Öll
börnin fengu gefins fjölnota poka og í hann safnað öllu því plasti sem kom inn
á heimilið í þrjá daga. Í ljós kom að hver fjölskylda skilar frá sér rúmlega 29
kg af plasti á ári hverju. Í leikskólanum eru 137 fjölskyldur sem láta þá frá
sér samanlagt u.þ.b. 4 tonn af plasti á ári. Hluti af verkefninu var að ræða
hvað gæti komið í staðinn fyrir plast og hvort alltaf þyrfti að nota plast.  

Allt frá árinu 2008 hefur fræðsluráð Hafnarfjarðarbæjar
veitt 1-3 viðurkenningar á ári til einstakra skólaverkefna sem þykja til
fyrirmyndar og einkennandi fyrir skapandi skólastarf í Hafnarfirði. Hin síðustu
ár hafa fjölmörg verkefni hlotið viðurkenninguna, verkefni sem hafa haft
frumkvæði, fagmennsku og ábyrgð að leiðarljósi og ýta undir samstarf,
hagnýtingu og þróun í skólastarfi og kennslufræði. Markmiðið er að að minna á
gildi og mikilvægi skólastarfs í Hafnarfirði. 

Ábendingagátt