Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Síðan 2021 hefur Hafnarfjarðarbær starfrækt Skapandi sumarstörf í annarri mynd en áður var. Hafnarfjörður mun iða af sköpun í sumar, af verkum og verkefnum sem mun skila sér svo margfalt til bæjarbúa, en síðast en ekki síst, til unga listafólksins okkar til framtíðar litið. Heklisgerði, hugarheimur ungs flóttafólks og fjöllist um huldufólk.
Síðan 2021 hefur Hafnarfjarðarbær starfrækt Skapandi sumarstörf í annarri mynd en áður var. Nú sækir ungt fólk á aldrinum 18-25 ára, eitt eða í hóp, um þátttöku með ákveðna hugmynd eða verkefni í huga. Hefur þessi nýja nálgun verið í þróun síðustu tvö ár og gefist einstaklega vel. Við val á verkefnum er horft til ýmissa þátta eins og gæði umsóknar, tengingar við Hafnarfjörð og fjölbreytileika listforma. Klara Elíasdóttir er verkefnastjóri Skapandi sumarstarfa og hefur verið síðustu tvö árin. Margrét Gauja Magnúsdóttir deildarstjóri ungmennahúsa Hafnarfjarðar kemur að vali verkefna og hýsingu þeirra yfir sumartímann.
„Ellefu einstaklingar fá ráðningu og tækifæri til að láta ljós sitt skína með framkvæmd á eigin hugmynd og verkefni. Hópurinn fylgir hugmynd sinni eftir í átta vikur, er á launum hjá Vinnuskóla Hafnarfjarðar og með aðsetur í Ungmennahúsinu Hamrinum. Öll verkefnin hingað til hafa raungerst og verið bæjarbúum til sóma,“ segir Margrét Gauja. Verkefnin hafa hlotið viðurkenningar og tilnefningar meðal annars til Edduverðlaunanna og unnið Íslensku tónlistarverðlaunin og Jólasögu Borgarbókasafnsins. Framhaldsskólar hafa sett upp leiksýningar byggðar á leikritum sem samin hafa verið hjá Skapandi sumarstörfum og hafa menningarhús og stofnanir bæjarins; Bæjarbíó, Hafnarborg og Bókasafn Hafnarfjarðar fengið að njóta hæfileika þessa unga fólks.
„Þessi tækifæri til sköpunar og mótunar á list sinni hafa gert listafólkinu kleift að sækja um listaskóla erlendis, til kynninga á verkefnum sem opnar á annað samstarf og samlegð milli verkefna. Skapandi sumarstörf eru valdeflandi vettvangur fyrir ungt fólk til að finna rödd sína innan sköpunar og koma henni á framfæri undir dyggri handleiðslu Klöru Ósk Elíasdóttur“.
Skapandi sumarstörf sumarið 2023 lofa góðu. Hellisgerði verður 100 ára í ár og í tilefni þess verður ung handverkskona með prjóna graffití og breytir garðinum í Heklisgerði. Ný tónlist verður samin, gefin út og flutt um allan bæ í allt sumar. Blað tileinkað ungu fólki verður gefið út, gerð stuttmynd um hugarheim ungs flóttafólks og þversnið af íbúum bæjarins gerð skil á sérstökum vef. Önnur spennandi verkefni snúa að fjöllist um huldufólk bæjarins, málun myndlistaverka og dansverkum gerð skil með ljósmyndun. Hafnarfjörður mun iða af sköpun í sumar, af verkum og verkefnum sem mun skila sér svo margfalt til bæjarbúa, en síðast en ekki síst, til unga listafólksins okkar til framtíðar litið.
Kynning í blaðinu Hafnfirsk æska sem gefið er út af Fjarðarfréttum 22. maí 2023
Menningarhátíðin Bjartir dagar hefst í Hafnarfirði á 115 ára afmælisdegi bæjarins á morgun fimmtudaginn 1. júní. Hátíðin fagnar 20 ára…
Hafnarfjarðarbær og RannUng hafa skrifað undir samstarfssamning með áherslu á starfshætti leikskóla, yngsta stigs grunnskóla og frístundaheimila Hafnarfjarðarbæjar. Samstarfið tengist…
Hafnarfjarðarhlaupið verður haldið í fyrsta skipti að kvöldi fimmtudagsins 8. júní. Miðpunktur hlaupsins verður á Thorsplani, en þar mun hlaupið…
Vignir Vatnar Stefánsson nældi í sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil eftir hreint magnaðan lokadag á Íslandsmótinu í skák að Ásvöllum í Hafnarfirði…
Vinnuskóli Hafnarfjarðar er hugsaður sem fyrsti vinnustaður ungmenna þar sem þau fá að upplifa það að vera á vinnumarkaði og…
Opnaður hefur verið nýr og metnaðarfullur tómstundavefur hjá Hafnarfjarðarbæ. Vefurinn hefur að geyma allar helstu upplýsingar um námskeið og afþreyingu…
Grunnskólaskákmót Hafnarfjarðar fyrir elstu nemendur í grunnskólum Hafnarfjarðar fór fram miðvikudaginn 10. maí síðastliðinn í Hvaleyrarskóla. Skákmótið var haldið á…
Fjölbreytt námskeið og sumartómstund standa börnum og ungmennum á aldrinum 6-13 ára til boða á vegum Hafnarfjarðarbæjar sumarið 2023. Mikil…
Dreifing á nýjum tvískiptum sorpílátum hófst á Holtinu í Hafnarfirði í gær. Guðrún Árný Karlsdóttir söngkona, kennari og íbúi á…
Dreifing á nýjum sorpílátum hófst í Hafnarfirði í morgun og ef allt gengur áætlunum samkvæmt mun dreifingu ljúka á Völlunum…