Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Blásið verður til tveggja daga hátíðarhalda um helgina í Hafnarfirði í tilefni Sjómannadagsins. Dagurinn skipar stóran sess í hugum Hafnfirðinga enda saga sjómanna á svæðinu bæði innihaldsrík og djúpstæð.
Blásið verður til tveggja daga hátíðarhalda um helgina í Hafnarfirði í tilefni Sjómannadagsins. Fjöldi einstaklinga, fyrirtækja, stofnana og félagasamtaka hefur tekið sig saman og sett upp metnaðarfulla og heimilislega dagskrá sem höfðar til allrar fjölskyldunnar. Sjómannadagurinn skipar stóran sess í hugum Hafnfirðinga enda saga sjómanna á svæðinu bæði innihaldsrík og djúpstæð.
Hafnfirðingar hafa haldið Sjómannadaginn hátíðlegan allt frá árinu 1953 og stendur ekkert til að gefa nokkuð eftir við hátíðarhöldin þrátt fyrir fækkun skipa við höfnina og þróun í nýjar atvinnuáttir á svæðinu. Höfnin hefur breyst úr því að vera iðandi af lífi tengdu fiski og fiskvinnslu í það að vera iðandi af fjölbreyttu lista- og menningarlífi auk þess sem mikið af smábátum, kajökum og skútum eru á svæðinu. Þannig hafa fjölmargir listamenn sett upp vinnustofur í Fornubúðum við Flensborgarhöfn auk þess sem 28 vinnustofur eru nú í Íshúsi Hafnarfjarðar. Um helgina verða vinnustofur listamanna opnar fyrir gesti og gangandi auk þess sem hægt verður að skoða fiska í körum á bryggju, kíkja á myndlistarsýningu á vegum Byggðasafns Hafnarfjarðar tengdri sjósókn í sýningarsal Íshússins og taka þátt í listasmiðjum hjá hvorutveggja Skógræktarfélagi Hafnarfjarðar sem vinnur með efni úr Höfðaskógi og hjá Hafnarborg þar sem unnið verður að gerð báta og fleka.
Komdu heim í Hafnarfjörðinn
Fjölbreytt dagskrá verður í boði við Flensborgarhöfn bæði laugardag og sunnudag og opnar hátíðarsvæðið klukkan 11 báða dagana. Björgunarsveit Hafnarfjarðar býður meðal annars upp á þrautabraut í sjó, rennibraut, gámasig, kassaklifur, fluglínutækni, koddaslag og björgunarsýningu. Siglingaklúbburinn Þytur verður með opið hús og býður öllum áhugasömum að máta sig við árabáta og kajaka auk þess sem boðið verður upp á skútusiglingar á kænum og kjölbátum. Þá sér Slysavarnardeildin Hraunprýði um að enginn verði svangur. Skemmtisigling í minni Hafnarfjarðar verður í boði frá kl. 13-17 á Sjómannadaginn sjálfan. Siglingin hefur alltaf verið vinsæl og má gera ráð fyrir að gott veður um helgina tryggi mikla aðsókn, ekki bara Hafnfirðinga heldur líka gesta víðsvegar af sem sjá ánægjuna í því að sækja bæinn heim og fagna með bæjarbúum.
Menningarstofnanir og sundlaugar Hafnarfjarðarbæjar verða opnar yfir Hvítasunnuhelgina sem hér segir. Heilsubærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga til að draga djúpt andann…
Við Hafnfirðingar getum sótt moltu frá morgundeginum á planinu við garðlöndin á Víðistöðum og á endurvinnslustöðinni á Breiðhellu.
Akstursþjónusta eldra fólks verður efld frá og með 15. maí. Ferðum fjölgar úr 8 í 16. Tvöfalt fleiri ferðir verða…
Tólf manna sendinefnd frá vinabæ Hafnarfjarðar Tartu í Eistlandi heimsótti bæinn heim í byrjun vikunnar. Hún kynnti sér starfsemina og…
Heilsubærinn Hafnarfjörður auglýsir eftir liðum sem vilja taka þátt í kappróðri á höfninni á Sjómannadaginn sunnudaginn 2. júní. Vinnustaðir, vinahópar,…
Ársreikningur Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 2023 var samþykktur í bæjarstjórn Hafnarfjarðar miðvikudaginn 8. maí. Helstu niðurstöður eru þær að afgangur af…
Dagana 9. – 12. maí 2024 standa yfir hreinsunardagar í Hafnarfirði undir yfirskriftinni HREINSUM HAFNARFJÖRÐ en þá geta íbúar í…
Vinnustaðakeppnin Hjólað í vinnuna 2024 hefst á morgun og fer fram dagana 8. – 28. maí. Heilsubærinn Hafnarfjörður hvetur öll…
Leikskóladagur barna í Hafnarfirði tekur umtalsverðum breytingum frá og með 1. september 2024 og er endurskipulagningin svar við breyttum forsendum…
Brettafélag Hafnarfjarðar hefur komið sér vel fyrir í nýrri og glæsilegri brettahöll að Selhellu 7 í Hafnarfirði og opnaði þar…