Verðum öll í sama liði á Treyjudaginn
Föstudaginn 4. september verður Treyjudagurinn haldinn í fyrsta sinn á Íslandi. Hafnfirðingar á öllum aldri hafa þá góða ástæðu til að klæðast íþróttatreyju í vinnunni, skólanum eða frístundastarfinu og sýna þannig börnum með krabbamein og fjölskyldum þeirra samstöðu.
Fyrsti Treyjudagurinn á Íslandi
Föstudaginn 4. september verður Treyjudagurinn haldinn í fyrsta sinn á Íslandi. Hafnfirðingar á öllum aldri hafa þá góða ástæðu til að klæðast íþróttatreyju í vinnunni, skólanum eða frístundastarfinu og sýna þannig börnum með krabbamein og fjölskyldum þeirra samstöðu.
Það skiptir ekki máli hvaða liði þú heldur með – á Treyjudaginn erum við öll í sama liði.
Börn með krabbamein, styrktarfélag stendur fyrir deginum en félagið fagnar 35 ára afmæli á þessu ári.
Á Íslandi greinist að meðaltali eitt barn með krabbamein í hverjum mánuði. Þegar barn greinist breytist lífið á augabragði, bæði fyrir barnið og fjölskyldu þess.
Markmið Treyjudagsins er fyrst og fremst að vekja athygli á málstaðnum og sýna stuðning og samstöðu. Fyrirmyndin kemur frá nágrannalöndum okkar, þar sem sambærilegir dagar hafa sameinað þúsundir einstaklinga, vinnustaða, skóla og íþróttafélaga.
Tökum þátt og sköpum stemningu
Einstaklingar, vinnustaðir, skólar, leikskólar, íþróttafélög og aðrir hópar eru hvattir til að taka þátt:
- Klæðast uppáhaldstreyjunni föstudaginn 4. september
- Safnast saman og taka skemmtilega hópmynd
- Deila myndinni á samfélagsmiðlum með myllumerkinu #treyjudagurinn.
Þátttakan snýst fyrst og fremst um að sýna börnunum og fjölskyldum þeirra að þau standi ekki ein. Félagið tekur við frjálsum framlögum.
Treyjudagurinn haldinn víða
Fram kemur á vefsíðu styrktarfélagsins Börn með krabbamein að Treyjudagurinn hafi fyrst verið fyrst haldinn á Englandi árið 2013. Dagurinn eins og vhann hafi þróast byggist á danskri fyrirmynd Børne Cancer Fonden frá árinu 2019. Fljótlega hafi Noregur og Svíþjóð bæst í hópinn og á örfáum árum hefur átakið sameinað þúsundir einstaklinga, fyrirtækja, skóla og íþróttafélaga í stuðningi við börn með krabbamein.
Með Treyjudeginum bætist Ísland í hópinn þar sem við stöndum með börnum með krabbamein og fjölskyldum þeirra.
Hafnarfjarðarbær tekur undir með styrktarsamtökunum og hvetur Hafnfirðinga til að klæða Hafnarfjörð í treyjur og verða öll í sama liði!
