Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Fjölbreytt dagskrá og frítt inn á alla viðburði. Söfnin í Hafnarfirði og Ásvallalaug taka virkan þátt í Vetrarhátíð með fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá fyrir alla aldurshópa. Vetrarhátíð er haldin dagana 1. -3. febrúar og fer fram í öllum sex sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins. Í Hafnarfirði nær dagskráin til Ásvallalaugar, Bókasafns Hafnarfjarðar, Hafnarborgar og Byggðasafns Hafnarfjarðar. Gestir eru jafnframt hvattir til að nota tækifærið og upplifa og njóta ljósadýrðarinnar í Hellisgerði.
Söfnin í Hafnarfirði og Ásvallalaug taka virkan þátt í Vetrarhátíð með fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá fyrir alla aldurshópa. Vetrarhátíð er haldin dagana 1. -3. febrúar og fer fram í öllum sex sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins. Í Hafnarfirði nær dagskráin til Ásvallalaugar, Bókasafns Hafnarfjarðar, Hafnarborgar og Byggðasafns Hafnarfjarðar. Gestir eru jafnframt hvattir til að nota tækifærið og upplifa og njóta ljósadýrðarinnar í Hellisgerði en með hækkandi sól strax eftir Vetrarhátíð verður hafist handa við að taka ljósin niður. Þessi hátíð ljóss og myrkurs, og haldin hefur verið um árabil, samanstendur af þrem meginstoðum: Safnanótt, Sundlauganótt og ljósalist ásamt fjölbreyttum viðburðum þar sem hópur listafólks tekur þátt í að skapa einstaka stemningu á höfuðborgarsvæðinu.
Ásvallalaug fimmtudaginn 1. febrúar frá kl. 18-22
Ásvallalaug verður opin fram á kvöld og í boði skemmtileg dagskrá frá kl. 18-22 en þá verður frítt í sund í laugina líkt og í tólf öðrum sundlaugum á höfuðborgarsvæðinu. Gestir í Ásvallalaug fá að upplifa öðruvísi kvöldstund í lauginni þar sem ljós, myrkur og gleði verða allsráðandi. Sundfélag Hafnarfjarðar býður öllum að koma á opna æfingu hjá Görpunum kl.20 og blæs til bombukeppni um stærstu gusuna kl.19:30 og aftur kl. 20:30. Hin eina sanna Eva Ruza mætir á svæðið og stýrir sundlaugarbingói fyrir alla fjölskylduna. Laufléttir og skemmtilegir vinningar í boði. Foreldraráð Sundfélags Hafnarfjarðar verður með veitingasölu í anddyri laugarinnar.
Hafnarborg, Byggðasafn og Bókasafn Hafnarfjarðar föstudaginn 2. febrúar frá kl. 18-22
Á Byggðasafni Hafnarfjarðar, Bókasafni Hafnarfjarðar og í Hafnarborg verður boðið upp á skemmtilega og fjölbreytta dagskrá á Safnanótt föstudagskvöldið 2. febrúar en þá opna fjölmörg söfn á öllu höfuðborgarsvæðinu dyr sínar.
Á Bókasafni Hafnarfjarðar hefst dagskráin kl. 18 þegar Mæja litla jarðarber úr Ávaxtakörfunni mætir á svæðið og verður með barnatónleika. Einnig verður Galdratáknasmiðja með Otiliu Martin, kynning á starfi safnsins, hljóðsaga, opið í djammhornið auk þess sem gestum býðst að prófa ýmis tæki safnsins eins og vinylpressu og barnmerkjavél.
Á Byggðasafni Hafnarfjarðar verður ratleikur um Pakkhúsið, Sívertsenhús og Beggubúð, Annríki mun sýna baðstofuverkin í Sívertsen-húsi og Dagrún Ósk Jónsdóttir, þjóðfræðingur flytur fyrirlesturinn „Máninn og myrkrið í íslenskum þjóðsögum“. Að lokum mun Listahópurinn Klassík flytja íslenska og erlenda tónlist.
Í Hafnarborg leiðir forstöðumaður hússins gesti um yfirstandandi sýningar. Tríó Halla Guðmunds kemur fram á síðdegistónleikum kl. 18 og gestir geta hugað að jarðtengingu og innri ró með því að taka þátt í Nidra hugleiðslu kl. 19:30.
Á Safnanótt leggja fjölmörg og ólík söfn á höfuðborgarsvæðinu áherslu á að bjóða upp á óhefðbundna, litríka og líflega viðburði þetta kvöld og veita gestum nýja sýn á söfnin. Íbúar og gestir á öllum aldri geta notið Safnanætur fram eftir kvöldi sér að kostnaðarlausu. Ljósaslóð Vetrarhátíðar verður í lykilhlutverki um helgina en það er gönguleið frá Hallgrímskirkju niður Skólavörðustíg og niður á Austurvöll sem vörðuð er með ljóslistaverkum. Þessi ljóslistaverk munu lýsa upp miðbæinn frá kl. 18:30–22:30 alla daga Vetrarhátíðar. Gestir geta því notið útiveru og upplifunar utandyra með sínum nánustu á sínum eigin hraða. Hafnfirðingar og vinir Hafnarfjarðar eru hvattir til að nota tækifærið um helgina og upplifa ljósdýrðina í Hellisgerði. Að Vetrarhátíðinni lokinni verður hafist handa við að taka jólaljósin niður með hækkandi sól.
Menningarstofnanir og sundlaugar Hafnarfjarðarbæjar verða opnar yfir Hvítasunnuhelgina sem hér segir. Heilsubærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga til að draga djúpt andann…
Við Hafnfirðingar getum sótt moltu frá morgundeginum á planinu við garðlöndin á Víðistöðum og á endurvinnslustöðinni á Breiðhellu.
Akstursþjónusta eldra fólks verður efld frá og með 15. maí. Ferðum fjölgar úr 8 í 16. Tvöfalt fleiri ferðir verða…
Tólf manna sendinefnd frá vinabæ Hafnarfjarðar Tartu í Eistlandi heimsótti bæinn heim í byrjun vikunnar. Hún kynnti sér starfsemina og…
Heilsubærinn Hafnarfjörður auglýsir eftir liðum sem vilja taka þátt í kappróðri á höfninni á Sjómannadaginn sunnudaginn 2. júní. Vinnustaðir, vinahópar,…
Ársreikningur Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 2023 var samþykktur í bæjarstjórn Hafnarfjarðar miðvikudaginn 8. maí. Helstu niðurstöður eru þær að afgangur af…
Dagana 9. – 12. maí 2024 standa yfir hreinsunardagar í Hafnarfirði undir yfirskriftinni HREINSUM HAFNARFJÖRÐ en þá geta íbúar í…
Vinnustaðakeppnin Hjólað í vinnuna 2024 hefst á morgun og fer fram dagana 8. – 28. maí. Heilsubærinn Hafnarfjörður hvetur öll…
Leikskóladagur barna í Hafnarfirði tekur umtalsverðum breytingum frá og með 1. september 2024 og er endurskipulagningin svar við breyttum forsendum…
Brettafélag Hafnarfjarðar hefur komið sér vel fyrir í nýrri og glæsilegri brettahöll að Selhellu 7 í Hafnarfirði og opnaði þar…