Víkingaþorpið dregur að sér mestu athyglina í Hafnarfirði

Fréttir

Víkingaþorpið, Sól veitingastaður og Krýsuvík eru þeir staðir í Hafnarfirði sem fólk í Bandaríkjunum og Bretlandi leitar mest að á netinu. Þetta kom fram á Ferðamannaþingi 2026 sem haldið var í Mosfellsbæ í gær.

Víkingaþorpið helsti segull Hafnarfjarðar

Víkingaþorpið, Sól veitingastaður og Krýsuvík eru þeir staðir í Hafnarfirði sem fólk leitar mest að á netinu. Þetta kom fram í erindi Hjalta Más Einarssonar, framkvæmdastjóra Datera, sem bar yfirskriftina Seglar höfuðborgarsvæðisins – ný samantekt 2026 á Ferðamannaþingi höfuðborgarsvæðisins 2026, sem haldið var í Hlégarði í Mosfellsbæ í gær.

Samantektin byggir á leitargögnum frá Íslandi, Bandaríkjunum og Bretlandi og gefur vísbendingar um hvaða ferðamannastaðir vekja mestan áhuga á netinu. Röðun staðanna miðast við leitir frá Bandaríkjunum og Bretlandi.

Helstu niðurstöður fyrir Hafnarfjörð

  • Víkingaþorpið er stærsti segull Hafnarfjarðar og í fjórða sæti á öllu höfuðborgarsvæðinu.
  • Sól veitingastaður og Aurora Basecamp koma ný inn á lista Hafnarfjarðar.
  • Krýsuvík og Kleifarvatn njóta sérstaklega mikils áhuga meðal fólks á Íslandi.
  • Erlendum leitum að Víkingaþorpinu fjölgaði um 3% frá árinu 2023.
Helstu seglar Hafnarfjarðar
Sæti Ferðamannastaður Bandaríkin og Bretland Ísland Samtals
1 Víkingaþorpið 6.650 9.490 16.140
2 Sól veitingastaður 700 5.400 6.100
3 Krýsuvík 590 10.800 11.390
4 Aurora Basecamp 520 340 860
5 Kleifarvatn 370 4.400 4.770

Röðun miðast við fjölda leita frá Bandaríkjunum og Bretlandi.

Víkingaþorpið er langstærsti segull Hafnarfjarðar meðal erlendra netnotenda samkvæmt samantektinni. Alls voru skráðar 16.140 leitir að staðnum, þar af 6.650 frá Bandaríkjunum og Bretlandi og 9.490 frá Íslandi. Erlendum leitum fjölgaði um 3% frá árinu 2023.

Víkingaþorpið skipar jafnframt fjórða sæti yfir ferðamannastaði á öllu höfuðborgarsvæðinu og hækkar um þrjú sæti frá fyrri samantekt.

Sól veitingastaður kemur nýr inn á listann í 2. sæti í Hafnarfirði, Krýsuvík er í 3. sæti og Aurora Basecamp kemur nýtt inn í 4. sæti. Kleifarvatn er í því fimmta.

Helstu seglar höfuðborgarsvæðisins

Sky Lagoon í Kópavogi er efst á lista yfir segla höfuðborgarsvæðisins. Þar á eftir koma Hallgrímskirkja og Harpa í Reykjavík og síðan Víkingaþorpið í Hafnarfirði.

Helstu seglar höfuðborgarsvæðisins
Sæti Ferðamannastaður Sveitarfélag Bandaríkin og Bretland Ísland Samtals
1 Sky Lagoon Kópavogur 24.260 20.500 44.760
2 Hallgrímskirkja Reykjavík 22.590 9.090 31.680
3 Harpa Reykjavík 10.920 8.190 19.110
4 Víkingaþorpið Hafnarfjörður 6.650 9.490 16.140
5 Hið íslenska reðasafn Reykjavík 6.130 1.730 7.860
6 Hvammsvík Kjalarnes 5.690 7.390 13.080
7 Perlan Reykjavík 5.580 6.740 12.320
8 Lava Show Reykjavík 4.510 5.800 10.310
9 FlyOver Iceland Reykjavík 4.190 9.000 13.190
10 Gróttuviti Seltjarnarnes 3.610 11.610 15.220

Röðun miðast við fjölda leita frá Bandaríkjunum og Bretlandi.

Meðal þess sem vekur athygli í niðurstöðunum er:

  • Víkingaþorpið hækkar um þrjú sæti og er komið í fjórða sæti.
  • Hvammsvík hækkar um sex sæti og erlendum leitum að staðnum fjölgar um 65%.
  • Hallgrímskirkja færist upp um eitt sæti og erlendum leitum fjölgar um 12%.
  • Lava Show hækkar um tvö sæti og erlendum leitum fjölgar um 20%.
  • Gróttuviti færist ofar á listann og erlendum leitum fjölgar um 30%.

Niðurstöðurnar sýna að Víkingaþorpið hefur sterka stöðu meðal helstu ferðamannasegla höfuðborgarsvæðisins. Staðurinn er jafnframt sá eini í Hafnarfirði sem kemst á lista yfir tíu mest leituðu staðina á svæðinu.

Við óskum Víkingaþorpinu til hamingju. Já, við erum stolt af því. Hafnarfjörður er heimili Víkinganna.

Ábendingagátt