UPPSKERA: Viltu rækta bæði tengsl og grænmeti í sumar?

Fréttir

Hafnarfjarðarbær og GETA hjálparsamtök hafa aftur tekið höndum saman og bjóða fjölskyldum í Hafnarfirði að taka þátt í að rækta grænmeti með öðrum af ólíkum bakgrunni til að styrkja tengsl, vináttu og efla holla lifnaðarhætti.

Uppskera – ræktun grænmetis og tengsla

Langar þig að læra að rækta grænmeti í fjölbreyttum hópi fólks í vinalegu umhverfi? Langar þig að gera eitthvað öðruvísi og spennandi í sumar? Þá er verkefnið Uppskera / Growing roots fyrir þig og jafnvel alla fjölskylduna.

Uppskera / Growing Roots er samstarfsverkefni GETU samtaka og Hafnarfjarðarbæjar, þar sem fjölskyldum í Hafnarfirði er boðið að taka þátt í sameiginlegri grænmetisræktun í fjölskyldugörðunum við Víðistaðatún. Markmið verkefnisins er að efla sjálfbærni, inngildingu, vellíðan og tengsl með því að skapa öruggt og aðgengilegt rými þar sem fólk hittist reglulega og ræktar saman grænmeti.

Fjölskyldurnar fá úthlutað ræktunarreitum í fjölskyldugörðunum við Víðistaðatún þar sem þau hjálpast að við ræktunina undir handleiðslu garðyrkjufræðings og með stuðningi frá starfsmönnum og sjálfboðaliðum GETU. Boðið verður uppá vikulega fundi í görðunum þar sem þátttakendur geta fengið ráðgjöf, spjallað og notið samvista hvert við annað. Með reglulegu millibili verða haldnir viðburðir og fræðsluerindi.

Við val á þátttakendum verður sérstaklega horft til þess að blanda saman fjölskyldum af ólíkum uppruna; heimamönnum, innflytjendum og flóttafólki sem hafa hlotið alþjóðlega vernd á Íslandi. Saman vinnur hópurinn að því að rækta grænmeti, vináttu og holla lifnaðarhætti.

Verkefnið er styrkt af Lýðheilsusjóði og samfélagssjóði HS orku, en það er einnig hluti af alþjóðlega verkefninu Resilient cities, healthy people sem er styrkt af Evrópusambandinu

Umsóknarfrestur er til 18. maí 2025. Áhugasamir fylli út umsókn hér.

Þátttökugjald fyrir hverja fjölskyldu er 5.000 kr. fyrir sumarið og innifalið í ‏því er:

  • eiginn ræktunarreitur
  • afnot af sameiginlegum ræktunarreitum
  • afnot af sameiginlegum verkfærum
  • fræðsla og ráðgjöf garðyrkjufræðings
  • stuðningur frá starfsfólki og sjálfboðaliðum GETU
  • ókeypis aðgangur að viðburðum og fræðsluerindum
  • gjafir frá styrktaraðilum

Athugið takmörkuð pláss í boði!

MYNDATEXTI: Verkefninu var fyrst hrundið af stað í fyrra og gekk afar vel, eins og myndirnar sýna.

 

Fyrirspurnir sendist á getasamtok@gmail.com

Ábendingagátt