Yngri börn en áður á leikskóla

Fréttir

Haustinnritun barna í leikskóla fór fram nú í ágúst og stendur aðlögun yfir. 109 börn fædd í upphafi árs 2015 eru komin með pláss á leikskólum í Hafnarfirði. Aðgerðir sem miða að lækkun innritunaraldurs eru farnar að skila árangri og eru ný börn á leikskóla haustið 2016 yngri en áður. 

Haustinnritun barna í
leikskóla fór fram nú í ágúst og stendur aðlögun yfir. 109 börn fædd í upphafi
árs 2015 eru komin með pláss á leikskólum í Hafnarfirði. Aðgerðir sem miða að
lækkun innritunaraldurs eru farnar að skila árangri og eru ný börn á leikskóla
haustið 2016 yngri en áður.
 

Frá því að opnað var fyrir innritun leikskólabarna í febrúar
2016 þá á innritun sér stað tvisvar sinnum á ári í Hafnarfirði, annars vegar í
ágúst og hins vegar í febrúar. Innritun að hausti er umfangsmikil en þá hefja
elstu deildir leikskólanna nám í grunnskóla og stórir hópar barna hefja
leikskólagöngu sína. 109 börn af 371 börnum sem fædd eru á árinu 2015 eru komin
með pláss á leikskóla í Hafnarfirði, öll þessi börn eru fædd í upphafi árs
2015. Fyrstu dagarnir og vikurnar innan leikskólanna fara í aðlögun barnanna að
breyttum aðstæðum og umhverfi og því að kynnast starfsfólki og nýjum vinum. Samhliða
hefst skipulagt starf innan yngstu deila skólanna sem eflist og styrkist með
tímanum.  Í febrúar 2017 munu börn fædd í
apríl og maí 2015 hefja sína leikskólagöngu eftir því sem pláss leyfa. Haustið
2017 komast svo öll önnur börn fædd árið 2015 inn á leikskóla. Þessar aðgerðir eru í takt við ákvörðun
fræðsluráðs Hafnarfjarðarbæjar frá 1. júní 2015 sem samþykkt var hjá bæjarráði,
í umboði bæjarstjórnar, þann 13. ágúst sama ár. Þar kemur fram að stefnt
sé að því að börn allt að 18 mánaða aldri innritist í leikskóla. Í einhverjum
tilfellum eru börnin þó eldri þar sem innritun á sér stað einungis tvisvar
sinnum yfir árið. Það er gert þannig að halda megi úti markvissu og góðu
skólastarfi, þar sem börnin eru í fyrirrúmi, í stað þess að fasi aðlögunar og
innritunar sé að eiga sér stað oftar yfir árið með tilheyrandi áhrifum á
skipulagt skólastarf. Til stendur að lækka innritunaraldur um einn mánuð við hverja innritun. Hér er verið að stíga mikilvæg skref í átt að enn
betri þjónustu við barnafjölskyldur í Hafnarfirði. 

Ábendingagátt