Vorsópun á götum, stéttum og göngustígum í Hafnarfirði hófst strax að loknum páskum. Sem fyrr er fyrst lögð áhersla á helstu umferðaræðar bæjarins og þeim verkum miðar vel áfram. Á næstu dögum hefst síðan sópun í íbúðahverfum samhliða þvotti á aðalgötum. Framvinda verkefnisins ræðst þó áfram af veðri næstu daga og vikur.

Bærinn skiptist í 15 hverfi
Viðmið vorsópunar eru frá 1. apríl til 1. júní ár hvert. Þá er bænum skipt upp í 15 hverfi og stefnt að því að hvert þeirra verði sópað á einum degi samkvæmt fyrirfram ákveðinni verkáætlun. Skilti verða sett upp í hverfum daginn áður en sópun fer fram og jafnframt fá íbúar smáskilaboð með upplýsingum um hvenær röðin kemur að þeirra svæði.
Samvinna skiptir máli
Íbúar eru hvattir til að leggja sitt af mörkum svo árangurinn verði sem bestur. Mikilvægt er að götur séu auðar af bílum þann dag sem sópað er svo hægt sé að hreinsa vel meðfram köntum og kantsteinum. Jafnframt er kjörið tækifæri fyrir íbúa og fyrirtæki að snyrta í kringum eigið húsnæði og innan lóðamarka – þannig verður ásýnd bæjarins enn fallegri. Að lokinni hverfasópun tekur við háþrýstiþvottur, áframhaldandi sópun á aðalgötum og safngötum ásamt eyjahreinsun.
Ábendingar vel þegnar
Starfsfólk Hafnarfjarðarbæjar tekur ávallt vel á móti ábendingum um það sem betur má fara. Fljótlegasta og skilvirkasta leiðin er að senda inn ábendingu í gegnum ábendingagátt sveitarfélagsins, þar sem erindið fer strax í formlegt ferli til úrvinnslu.