10. júní kl. 17 – Sögugerð og sprell

Hugrún Margrét leiðir hjólastóla- og barnavagnavæna göngu frá Flensborg niður að Óla Run túni. Þátttakendur skapa saman alls konar bullsögur. Niðri á túni verða sögurnar lesnar upp, svo farið í sígilda útileiki og boðið upp á létta hressingu. Gengið verður frá Flensborg.

Hafnarfjarðarbær býður upp á menningar- og heilsugöngur öll miðvikudagskvöld í sumar. Flestar göngurnar taka um klukkustund og hefjast kl. 20, nema annað sé tekið fram. Menningar- og heilsugöngur eru samstarfsverkefni Hafnarborgar, Byggðasafns Hafnarfjarðar, Bókasafns Hafnarfjarðar og Heilsubæjarins Hafnarfjarðar. Þátttaka er ókeypis og öll velkomin.

Ábendingagátt