24. júní kl. 20 – Slóðir alþýðukonunnar

Valgerður Sigurðardóttir leiðir göngu um söguslóðir alþýðukonunnar í Hafnarfirði. Rýnt verður í líf, aðstæður og sögu kvenna í bænum á fyrri tímum. Gengið verður um vesturbæinn og dvalið við staði sem tengjast daglegu lífi og sögu kvenna í hverfinu. Gestum gefst kostur á að skoða nýja sýningu um alþýðukonuna í skúrnum við Siggubæ áður en gangan hefst. Gengið verður frá Siggubæ, Kirkjuvegi 10.

Hafnarfjarðarbær býður upp á menningar- og heilsugöngur öll miðvikudagskvöld í sumar. Flestar göngurnar taka um klukkustund og hefjast kl. 20, nema annað sé tekið fram. Menningar- og heilsugöngur eru samstarfsverkefni Hafnarborgar, Byggðasafns Hafnarfjarðar, Bókasafns Hafnarfjarðar og Heilsubæjarins Hafnarfjarðar. Þátttaka er ókeypis og öll velkomin.

Ábendingagátt