8. júlí kl. 17 – Plöntutengsla- og söngganga fyrir fjölskyldur

Búi Bjarmar og Hrefna Lind leiða lifandi og skemmtilega fjölskyldugöngu þar stoppað verður á forvitnilegum stöðum í bænum. Við skoðum plöntur og annað spennandi sem verður á vegi okkar. Ganga, náttúra og söngur fléttast saman á skapandi hátt. Gengið verður frá Hafnarborg.

Hafnarfjarðarbær býður upp á menningar- og heilsugöngur öll miðvikudagskvöld í sumar. Flestar göngurnar taka um klukkustund og hefjast kl. 20, nema annað sé tekið fram. Menningar- og heilsugöngur eru samstarfsverkefni Hafnarborgar, Byggðasafns Hafnarfjarðar, Bókasafns Hafnarfjarðar og Heilsubæjarins Hafnarfjarðar. Þátttaka er ókeypis og öll velkomin.

Ábendingagátt