Skipulagsbreyting – Selhella 1
Í auglýsingu er tillaga að breytingu á deiliskipulagi Selhrauns norður vegna lóðarinnar Selhella 1. Deiliskipulagsbreytingin felur í sér að lóðin minnkar, nýtingarhlutfall hækkar, aðkomur að lóð og fyrirkomulag bílastæða breytast og að opið skýli á lóð verði fjarlægt. Frestur til athugasemda 1. maí 2017.
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Selhrauns norður vegna lóðarinnar Selhella 1, Hafnarfirði.
Skipulags- og byggingarráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum 06.09.2016 að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi lóðarinnar við Selhellu 1 í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Um er að ræða breytingu á deiliskipulagi Selhrauns norður vegna mislægra gatnamóta Krýsuvíkurvegar og Reykjanesbrautar.
Deiliskipulagsbreytingin felur í sér að lóðin minnkar, nýtingarhlutfall hækkar, aðkomur að lóð og fyrirkomulag bílastæða breytast og að opið skýli á lóð verði fjarlægt.
Tillagan verður til sýnis í þjónustuveri Hafnarfjarðar Strandgötu 8-10 og hjá Umhverfis- og skipulagsþjónustu Norðurhellu 2, frá 20.03. til 01.05. 2017.
Einnig er hægt er að skoða deiliskipulagstillöguna HÉR
Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytinguna og skal þeim skilað skriflega til Umhverfis- og skipulagsþjónustu Hafnarfjarðarbæjar, eigi síðar en 01.05. 2017. Þeir sem eigi gera athugasemdir við breytinguna innan tilskilins frests, teljast samþykkir henni.
Nánari upplýsingar eru veittar hjá umhverfis- og skipulagsþjónustu.