UPPSKERA: Viltu rækta bæði tengsl og grænmeti í sumar?

Fréttir

Heilsubærinn Hafnarfjörður og GETA samtök hafa tekið höndum saman og bjóða fjölskyldum í Hafnarfirði að taka þátt í samvinnuverkefni við grænmetisrækt, þar sem fólk með ólíkan bakgrunn kemur saman til að styrkja samfélagsleg tengsl, efla vináttu og hvetja til heilbrigðra lifnaðarhátta.

Uppskera – ræktun grænmetis og tengsla

Langar þig að læra að rækta grænmeti í fjölbreyttum hópi fólks í vinalegu umhverfi? Langar þig að gera eitthvað öðruvísi og spennandi í sumar? Þá er verkefnið Uppskera fyrir þig og jafnvel alla fjölskylduna.

Í Uppskeru er fjölskyldum í Hafnarfirði boðið að taka þátt í sameiginlegri grænmetisræktun í matjurtagörðunum við Víðistaðatún. Markmið verkefnisins er að efla sjálfbærni, inngildingu, vellíðan og tengsl með því að skapa öruggt og aðgengilegt rými þar sem fólk hittist reglulega og ræktar saman grænmeti.

Fjölskyldunum verður úthlutað ræktunarreitum í matjurtargörðunum við Víðistaðatún þar sem þær hjálpast að við ræktunina undir handleiðslu garðyrkjufræðings og með stuðningi frá starfsmönnum og sjálfboðaliðum GETU. Boðið verður upp á vikulega fundi í görðunum þar sem þátttakendur geta fengið ráðgjöf, spjallað og notið samverustunda. Í lok verkefnisins verður haldin uppskeruhátíð.

Verkefnið er ætlað öllum áhugasömum fjölskyldum sem búa í Hafnarfirði óháð uppruna. Saman munu þátttakendur rækta grænmeti, vináttu og heilbrigðan lífsstíl.

Verkefnið er styrkt af Heilsubænum Hafnarfirði og vinnumálastofnun, en það er einnig hluti af alþjóðlega verkefninu Resilient cities, healthy people sem  styrkt er af Evrópusambandinu

Umsóknarfrestur er til og með 7. júní 2026. Áhugasamir fylli út umsókn hér.

Athugið takmörkuð pláss í boði!

Fyrirspurnir sendist á getasamtok@gmail.com

Ábendingagátt