Heimilisfræðikennari – Öldutúnsskóli
Sækja um starfUmsóknarfrestur frá: 19.06.2026
Umsóknarfrestur til: 03.07.2026
Tengiliður: Margrét Sverrisdóttir, Áslaug Hreiðarsdóttir
Heimilisfræðikennari óskast við Öldutúnsskóla
Öldutúnsskóli auglýsir eftir heimilisfræðikennara til starfa frá 1. ágúst 2026.
Í Öldutúnsskóla eru um 590 nemendur í 1.–10. bekk. Við leggjum áherslu á skapandi og gefandi námsumhverfi þar sem markmiðið er að gera námið bæði áhugavert og skemmtilegt. Einkunnarorð skólans eru virðing, virkni og vellíðan og endurspeglast þau í öllu skólastarfinu.
Í skólanum er lögð rík áhersla á góðan starfsanda, fjölbreytta kennsluhætti, teymisvinnu og teymiskennslu. Unnið er samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og Olweusaráætlun gegn einelti og andfélagslegri hegðun. Einnig er lögð sérstök áhersla á umhverfismennt og sjálfbærni.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Annast heimilisfræðikennslu á öllum aldursstigum í samstarfi við stjórnendur og kennara.
- Taka þátt í þróun skólastarfs og faglegu samstarfi innan skólans.
- Stuðla að velferð og farsæld nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
- Starfa samkvæmt stefnu og áherslum skólans.
- Sinna öðrum verkefnum samkvæmt starfslýsingu kennara.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf til kennslu (afrit skal fylgja umsókn).
- Menntun og/eða reynsla sem nýtist í heimilisfræðikennslu.
- Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og góð samstarfshæfni.
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
- Jákvætt viðhorf og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu starfsumhverfi.
- Stundvísi og samviskusemi.
- Góð íslenskukunnátta. Miðað er við hæfniviðmið C1 samkvæmt viðmiðum Evrópska tungumálarammans.
Nánari upplýsingar veita:
Margrét Sverrisdóttir, skólastjóri
Sími: 664 5894
Netfang: margret.sverrisdottir@oldutunsskoli.is
Áslaug Hreiðarsdóttir, aðstoðarskólastjóri
Sími: 664 5895
Netfang: aslaughr@oldutunsskoli.is
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.
Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi leggi fram hreint sakavottorð.
Með umsókn skulu fylgja greinargóð ferilskrá og afrit af leyfisbréfi til kennslu.
Umsóknarfrestur er til og með 1. júlí 2026.
Vakin er athygli á jafnréttisstefnu Hafnarfjarðarbæjar. Markmið bæjarins er að jafna kynjahlutföll á vinnustöðum sínum og að starfsfólk endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.