Grunnskólastarf verður aftur með óbreyttu sniði
Tekin hefur verið sú miðlæga ákvörðun fyrir grunnskóla í Hafnarfirði að grunnskólastarf verði aftur með óbreyttu sniði. Hefst full kennsla samkvæmt stundaskrá í síðasta lagi mánudaginn 11. janúar.
Tekin hefur verið sú miðlæga ákvörðun fyrir grunnskóla í Hafnarfirði að grunnskólastarf verði aftur með óbreyttu sniði. Hefst full kennsla samkvæmt stundaskrá í flestum árgöngum skólanna fimmtudaginn 7. janúar eða í síðasta lagi mánudaginn 11. janúar í einstaka skólum. Nær þetta einnig til valgreina og kennslu skólaíþrótta í íþróttahúsum og sundlaugum hjá öllum nemendum. Hver skóli mun eða hefur þegar tilkynnt forráðamönnum hvenær breytingarnar taka gildi hjá viðkomandi nemendum.
Matarþjónusta í eðlilegt horf
Með þessari breytingu mun matarþjónusta komast í eðlilegt horf, þ.e. hafragrautur að morgni og hefðbundin matarþjónusta í matsal skóla fyrir alla nemendur. Grímuskylda nemenda leggst af með öllu. Í flestum skólum flyst frístundastarf aftur úr skólastofum yngri nemenda í frístundaheimili og morgungæslan verður með sama fyrirkomulagi og í haust. Í einhverjum skólum þarf að nýta áfram hluta af skólastofunum. Önnur starfsemi sem hliðra þurfti til vegna hólfunar færist í flestum tilfellum aftur á sinn stað. Áfram verða þó ýmsar takmarkanir í gangi varðandi skólastarfið. Þannig verða óbreyttar reglur varðandi heimsóknir foreldra, þ.e. þær eru ekki heimilar nema sérstök þörf sé á og að foreldrar séu boðaðir í skóla. Aðgengi annarra sem styðja við skólastarfið er einnig takmörkuð og grímuskylda er meðal fullorðinna eftir ákveðnum leikreglum.
Núverandi sóttvarnarreglur gilda til 28. febrúar nk.