14 verkefni hlutu menningarstyrk
Styrkir til verkefna og viðburða voru afhentir við hátíðlega athöfn í Bæjarbíó á síðasta vetrardag og hlutu 14 verkefni styrk að þessu sinni.
Aðilar og verkefni sem auðga og dýpka enn frekar listalíf Hafnarfjarðarbæjar
Styrkir menningar- og ferðamálanefndar Hafnarfjarðarbæjar til verkefna og viðburða voru afhentir við hátíðlega athöfn í Bæjarbíó á síðasta vetrardag samhliða útnefningu bæjarlistamanns og hlutu 14 verkefni styrk að þessu sinni. Þá eru í gildi samstarfssamningar vegna Hjarta Hafnarfjarðar, Sönghátíðar í Hafnarborg, Víkingahátíðar á Víðistaðatúni, HEIMA hátíðarinnar og vegna tónleikahalds Lúðrasveitar Hafnarfjarðar.
Menningarstyrkir eru afhentir tvisvar sinnum á ári til aðila og verkefna sem líkleg eru til að auðga og dýpka enn frekar listalíf bæjarins. Úthlutun styrkja Hafnarfjarðarbæjar byggir á mati á umsóknum. Menningarviðburðir, listamenn, félagasamtök eða stofnanir sem sækja um styrk verða að tengjast Hafnarfirði með einhverjum hætti. Hér telur t.a.m. föst búseta, að viðburður/verkefni fari fram í Hafnarfirði og/eða að verkefni feli í sér kynningu á menningarstarfsemi Hafnarfjarðar.
Heildarupphæð styrkja í þessari úthlutun er 2,9 milljónir. Samtals verður úthlutað 11 milljónum í formi menningarstyrkja á árinu 2021.
Styrkþegar í fyrri úthlutun menningarstyrkja 2021
| Málsaðili | Veittur styrkur | Heiti verkefnis/Heiti verkefnis |
| Andrés Þór Gunnlaugsson | 250.000 kr | Síðdegistónar í Hafnarborg veturinn 2021- 2022 |
| Anna María Cornette | 400.000 kr | Valdefling kvenna í fjölmenningarsamfélagi í gegnum listferðalag milli byggðarlaga (Hafnarfjarðarhluti) í samstarfi við Bókasafns Hafnarfjarðar |
| Brynhildur Auðbjargardóttir | 250.000 kr | Til hamingju með afmælið Kór Öldutúnsskóla! Barnarómur í 55 ár |
| Fimleikafélagið Björk rekstur | 200.000 kr | 70 ára afmæli félagsins- Sögusýning og viðburðir |
| Guðmundur R Lúðvíksson | 400.000 kr | Óskastund í Hafnarfirði |
| Hringleikur – sirkuslistafélag | 180.000 kr | Sumarsirkus Hringleiks 2021 |
| Inga Björk Ingadóttir | 205.000 kr | Straumur – Inga Björk & hljómsveit |
| Leikfélag Hafnarfjarðar | 150.000 kr | Leikarinn sem skapandi listamaður |
| Ungmennahúsið Hamarinn | 180.000 kr | Það er bjart framundan |
| Ragnar Már Jónsson | 200.000 kr | Bossa Nova Tríó Ragga Jóns – tónleikar |
| Rebekka Sif Stefánsdóttir | 160.000 kr | Ljúfir tónar vítt um bæinn |
| Selma Hafsteinsdóttir | 100.000 kr | Tónafljóð í Hellisgerði |
| Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir | 150.000 kr | Dúettinn Lygna sækir íbúa Sólvangs og Hrafnistu heim |
| Soffía Sæmundsdóttir | 75.000 kr | Vorsýning @ Soffía vinnustofa & gallerí |
Afhending menningarstyrkjanna fór fram með óhefðbundnum hætti enda nauðsynlegt að gæta að sóttvörnum í hvívetna. Styrkhafar fengu viðurkenningarskjal, rós og persónulegar veitingar afhent í sætið við komuna í Bæjarbíó og að athöfn lokinni var tekin hópmynd yfir hálftóman salinn enda aðeins örfáir boðsgestir.
Auglýst verður eftir umsóknum fyrir síðari úthlutun ársins 2021 í ágúst.
Hafnarfjarðarbær óskar styrkhöfum öllum innilega til hamingju!