Mundu eftir frístundastyrknum!
Þetta þarftu að vita um frístundastyrki Hafnarfjarðarbæjar. Frístundastyrkurinn er hugsaður fyrir öll börn og ungmenni á aldrinum 6-18 ára sem skráð eru í virkt íþrótta- og tómstundastarf. Um er að ræða mánaðarlegan styrk til lækkunar á þátttökugjöldum.
Frístundastyrkur Hafnarfjarðarbæjar er hugsaður fyrir öll börn og ungmenni á aldrinum 6-18 ára sem skráð eru í virkt íþrótta- og tómstundastarf. Um er að ræða mánaðarlegan styrk til lækkunar á þátttökugjöldum. Við rafræna skráningu hjá íþrótta- og tómstundafélögum, innan eða utan Hafnarfjarðar, geta foreldrar og forráðamenn valið að nýta styrkinn og draga hann frá þátttökugjöldum.
Þetta þarft þú að vita um frístundastyrkina:
- Fyrir 6-18 ára börn með lögheimili í Hafnarfirði (miðað við fæðingarár)
- Heimilt er að nýta styrkinn í tónlistarnám
- Hægt er að nota frístundastyrkinn til að greiða niður líkamsræktarkort eða sambærilegt aðgangskort sem tengist íþróttum og hreyfingu fyrir 16 ára og eldri. Kortin verða að gilda í þrjá mánuði eða lengur að uppfylltum ákveðnum skilyrðum um fræðslu til iðkenda og utanumhald. Heimildin gildir frá áramótum þess árs sem börnin verða 16 ára
- Niðurgreiðslur ná eingöngu til félaga og viðurkenndra aðila sem eru með skipulagða kennslu/þjálfun í að minnsta kosti 10 vikur í senn og að lágmarki eina æfingu í viku
- Niðurgreiðsla bæjarins er að hámarki 4.500.- kr. á mánuði á hvern iðkanda
- Frístundastyrkurinn verður aldrei hærri en 54.000.- kr. á ári
- Greiðslukvittanir sem berast fyrir 15. dag hvers mánaðar og uppfylla viðmið í reglum verða greiddar um 20. dag næsta mánaðar
- Ekki er tekið á móti kvittunum eldri en tveggja mánaða frá upphafsdegi námskeiðs
- Ekki er hægt að endurgreiða eða bakfæra styrk frá félögum þegar foreldri/forráðamaður hefur ráðstafað styrknum til félags
Nánari upplýsingar um frístundastyrk Hafnarfjarðarbæjar
Reglur um frístundastyrk
Virkni í íþrótta- og tómstundastarfi er öllum börnum mikilvæg
Markmið frístundastyrkja er að efla íþróttastarf og annað forvarnarstarf og gera börnum með lögheimili í Hafnarfirði kleift að taka þátt í skipulögðu starfi óháð efnahag fjölskyldna. Einnig á styrkurinn að vinna gegn óæskilegu brotthvarfi í eldri aldurshópum iðkenda. Rannsóknir hafa sýnt að mikilvægt er að halda börnum og ungmennum virkum í íþrótta- og frístundastarfi og tryggja jafnt aðgengi barna og unglinga að slíku starfi.
Virkjum börn okkar og ungmenni!