Þrettán verkefni fá menningarstyrk
Styrkir menningar- og ferðamálanefndar Hafnarfjarðarbæjar til verkefna og viðburða voru afhentir við hátíðlega athöfn í Bókasafni Hafnarfjarðar í gær og hlutu þrettán verkefni styrk að þessu sinni. Heildarupphæð styrkja í þessari úthlutun er 2,7 milljónir og þar með hefur samtals 11 milljónum verið úthlutað í formi menningarstyrkja á árinu 2021.
Styrkir menningar- og ferðamálanefndar Hafnarfjarðarbæjar til verkefna og viðburða voru afhentir við hátíðlega athöfn í Bókasafni Hafnarfjarðar í gær og hlutu þrettán verkefni styrk að þessu sinni. Heildarupphæð styrkja í þessari úthlutun er 2,7 milljónir og þar með hefur samtals 11 milljónum verið úthlutað í formi menningarstyrkja á árinu 2021.
Verkefni sem auðga og dýpka listalíf bæjarins
Hafnarfjarðarbær afhendir menningarstyrki tvisvar sinnum á ári til aðila og verkefna sem líkleg eru til að auðga og dýpka enn frekar listalíf bæjarins. Úthlutun styrkja byggir á mati á umsóknum og verða menningarviðburðir, listafólk, félagasamtök eða stofnanir sem sækja um styrk að tengjast Hafnarfirði með einhverjum hætti. Hér telur t.a.m. föst búseta, að viðburður/verkefni fari fram í Hafnarfirði og/eða að verkefni feli í sér kynningu á menningarstarfsemi Hafnarfjarðar.
Styrkþegar í seinni úthlutun menningarstyrkja 2021
| Málsaðili | Styrkur | Heiti verkefnis |
| Bjarni Þór Jóhannsson | 250.000 kr | Ljósmyndasýning af Hafnarfirði og Hafnfirðingum. |
| Eva Ágústa Aradóttir | 100.000 kr | Ljósmyndasýning í Bókasafni Hafnarfjarðar |
| Hafsteinn Hafsteinsson | 200.000 kr | Októberfest á Krydd veitingahúsi |
| Halla Björg Haraldsdóttir | 200.000 kr | Syngjum saman – óskuldbindandi mánaðarleg söngstund með Guðrúnu Árnýju |
| Jóhanna Ósk Valsdóttir | 400.000 kr | Jólahjón – streymi og tónleikar á dvalarheimilum aldraðra í Hafnarfirði |
| Jón Rafnsson | 300.000 kr | Síðdegistónar á útmánuðum (?vinnuheiti eins og er) |
| Leikfélag Hafnarfjarðar | 100.000 kr | Leiklistarnámskeið fyrir byrjendur |
| Margrét Arnardóttir | 100.000 kr | Óskalagastund Barnanna |
| Olga Björt Þórðardóttir | 250.000 kr | Plássið, hlaðvarp. |
| Pamela De S. Kristbjargardóttir | 400.000 kr | WindWorks tónlistarhátið |
| Rósa Guðrún Sveinsdóttir | 100.000 kr | Ella & Louis – heiðurstónleikar |
| Unnur Helga Möller | 200.000 kr | Vegaljóð – Tónleikar um Tolkien |
| Þorbjörg Signý Ágústsson | 100.000 kr | Líf er list og list er líf |
Hafnarfjarðarbær óskar styrkhöfum öllum innilega til hamingju!