15 verkefni fengu menningarstyrk
Styrkir menningar- og ferðamálanefndar Hafnarfjarðarbæjar til verkefna og viðburða voru afhentir við hátíðlega athöfn í Hafnarborg síðasta vetrardag samhliða útnefningu bæjarlistamanns og hlutu 15 verkefni styrk að þessu sinni. Sex verkefni fengu samstarfssamning til tveggja eða þriggja ára að þessu sinni.
Aðilar og verkefni sem auðga og dýpka enn frekar listalíf Hafnarfjarðarbæjar
Styrkir menningar- og ferðamálanefndar Hafnarfjarðarbæjar til verkefna og viðburða voru afhentir við hátíðlega athöfn í Hafnarborg síðasta vetrardag samhliða útnefningu bæjarlistamanns og hlutu 15 verkefni styrk að þessu sinni. Sex verkefni fengu samstarfssamning til tveggja eða þriggja ára að þessu sinni.
Menningarstyrkir eru afhentir tvisvar sinnum á ári til aðila og verkefna sem líkleg eru til að auðga og dýpka enn frekar listalíf bæjarins. Úthlutun styrkja Hafnarfjarðarbæjar byggir á mati á umsóknum. Menningarviðburðir, listamenn, félagasamtök eða stofnanir sem sækja um styrk verða að tengjast Hafnarfirði með einhverjum hætti. Hér telur t.a.m. föst búseta, að viðburður/verkefni fari fram í Hafnarfirði og/eða að verkefni feli í sér kynningu á menningarstarfsemi Hafnarfjarðar.
Heildarupphæð styrkja í þessari úthlutun er 11,6 milljónir.
Styrkþegar í fyrri úthlutun menningarstyrkja 2022
| Málsaðili | Heiti verkefnis | Veittur styrkur | Samstarfs-samningur |
| Aðalsteinn Gunnarsson | Túnleikar á Víðistaðatúni | 300.000 kr | |
| Andrés Þór Gunnlaugsson | Síðdegistónar í Hafnarborg veturinn 2022 – 2023 | 900.000 kr | |
| Björn Thoroddsen | Guitarama 2022 Gítarveisla Bjössa Thor | 700.000 kr | Til þriggja ára |
| Daníel Sigríðarson | Sirkussýningin Glappakast | 300.000 kr | |
| Erlendur Sveinsson | SVEINSSAFN: Stefnumót listar og náttúru | 750.000 kr | Til þriggja ára |
| Eyrún Ósk Jónsdóttir | Hlaðvarpsleikrit – Listahópurinn Kvistur | 200.000 kr | |
| Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir | Sönghátíð í Hafnarborg | 900.000 kr | Til þriggja ára |
| Jasper Matthew Bunch | Appoló Listahátið Ungs Fólks í Hanarfirði | 500.000 kr | |
| Júlíana Kristín Jónsdóttir | Girls and boys | 250.000 kr | |
| Klara Ósk Elíasdóttir | Hafnfirskar stelpur rokka! | 800.000 kr | |
| Olafur Gudlaugsson | Hjarta Hafnarfjarðar OFF VENUE í Ölhúsinu Reykjavíkurvegi | 300.000 kr | |
| Páll Eyjólfsson | Hjarta Hafnarfjarðar – Samstarfsstyrkur Hafnarfjarðarbæjar og Bæjarbíós slf | 4.500.000 kr | Til tveggja ára |
| Reynir Hauksson | Flamenco sýningar í Bæjarbíói | 400.000 kr | |
| Stefán Ómar Jakobsson | Kabarettleikhús / söngleikjatónlist eftir Kurt Weil | 500.000 kr | |
| Unnur Sara Eldjárn | Franskir pop – up tónleikar í Hafnarfirði | 300.000 kr |
Auglýst verður eftir umsóknum fyrir síðari úthlutun ársins 2022 í ágúst en bæjarráð hefur auglýst sérstaka viðburða- og menningarstyrki í kjölfar Covid-19 lausa til umsóknar. Umsóknarfrestur er til og með 25. apríl og verða styrkirnir teknir til úthlutunar í bæjarráði.
Hafnarfjarðarbær óskar styrkhöfum öllum innilega til hamingju!