Gæsluvöllur á Álfasteini í sumar
Í sumar verður gæsluvöllur (róló) opinn við leikskólann Álfastein, Háholti 17, þar sem börn geta notið útileikja og skemmtilegrar samveru í öruggu umhverfi. Um er að ræða dagana 20. – 24. júlí og 27. -30. júlí. Gæsluvöllurinn er ætlaður börnum á aldrinum 3–5 ára (fædd 2021–2023) og fer skráning fram í gegnum Völu.
Útileikir og skemmtileg samvera
Í sumar verður opinn gæsluvöllur (róló) við leikskólann Álfastein, Háholti 17, þar sem börn geta notið útileikja og skemmtilegrar samveru í öruggu umhverfi.
Opnunartími
- 20–24. júlí og 27.–30. júlí
- Fyrir hádegi: kl. 9:00–11:30
- Eftir hádegi: kl. 13:00–15:30
Athugið sérstaklega
- Föstudaginn 24. júlí er aðeins opið fyrir hádegi
- Föstudaginn 31. júlí er lokað
Fyrir hverja?
Gæsluvöllurinn er ætlaður börnum á aldrinum 3–5 ára (fædd 2021–2023).
Skráning
Skráning fer fram í Völu, þar sem hægt er að kaupa 5 eða 10 skipta kort. Eitt skipti gildir fyrir eina dvöl, fyrir eða eftir hádegi (að hámarki 2,5 klukkustundir). Foreldrar eru vinsamlegast beðnir um að fylla út eftirfarandi spurningalista og merkja við fyrirhugaða mætingu hér.
Almennar upplýsingar til foreldra
- Klæðið börnin eftir veðri – öll dagskrá fer fram utandyra
- Gæsluvöllurinn er ætlaður til útileikja og kemur ekki í stað leikskóla
- Mælt er með að yngstu börnin dvelji ekki lengur en um 1,5 klukkustund í senn
- Börnin þurfa að geta notað salerni sjálf
- Gott er að senda með vatnsbrúsa og létta hressingu
Umsjón
Torfi Már í síma 664-7126.