Hestar, klifurveggir og íshokkí á fyrstu Frístundamessunni
Sörli með hesta, skátarnir með útieldhús, bjarkirnar setja upp klifurvegg og skautafélagið með mark og markmann í íshokkí. Fyrsta Frístundamessan verður í íþróttahúsinu við Strandgötu 29. ágúst.
Frístundamessa 29. ágúst
Sörli með hesta, skátarnir með útieldhús, bjarkirnar setja upp klifurvegg og skautafélagið með mark og markmann í íshokkí. Já, fyrsta Frístundamessan okkar hér í Hafnarfirði er að taka á sig mynd.
Þetta er ekki það eina, því Siglingafélagið verður með kajak og sýnir hvernig seglið virka á bátum. Boxfélagið stefnir á að setja upp æfingaboxhring.
Fimmtán félög verða á Frístundamessunni sem haldin verður í íþróttahúsinu við Strandgötu 29. ágúst næstkomandi. Þetta er fullkomið tækifæri til kynna fjölbreytt íþrótta- og tómstundafélög bæjarins fyrir börnunum okkar. Allt á einum stað. Já, finna þá frístund sem hentar hverju barni best.
Frístundamessan er liður í þeirri stefnu Hafnarfjarðarbæjar að styðja við heilsu, virkni og vellíðan barna og ungmenna. Sem heilsubær leggur Hafnarfjörður áherslu á að öll börn fái tækifæri til að hreyfa sig, mynda félagsleg tengsl og blómstra á eigin forsendum.
„Það mikilvægasta er að hvert barn finni frístund sem vekur áhuga, eykur sjálfstraust og verður hluti af góðri daglegri rútínu,“ segir Tinna Rós Steinsdóttir, íþróttafulltrúi Hafnarfjarðarbæjar. Hún segir þátttöku í frístundastarfi hafa áhrif langt umfram sjálfa æfinguna eða tómstundina.

Ertu ekki örugglega að taka tímann frá? Það er þess virði.