Þrjátíu smiðjur og fimm heimar á Heimum og himingeimum

Fréttir

Búninga- og leikjahátíðin Heimar og himingeimar verður haldin í þriðja sinn á Bókasafni Hafnarfjarðar í byrjun september. Um 10.000 heimsóttu hátíðina í fyrra.

 

Heimar og himingeimar 4.-6. september

Þrjátíu smiðjur og fimm heimar verða í boði á þeim þremur dögum sem búninga og leikjahátíðin Heimar og himingeimar stendur yfir. Fimm þúsund manns mættu á fyrstu hátíðina og tíu þúsund í fyrra.

„Við stefnum á að vera með geislasverðaþjálfun, brynjugerð, allskonar föndur – og tónleika, bæði rokk og lúðrasveit,“ segir Unnur Helga Möller, viðburðastjóri Bókasafns Hafnarfjarðar og framkvæmdastjóri hátíðarinnar. Hún er því við öllu búin nú þegar þessi gullfallega búningahátíð færist yfir í ný húsakynni Bókasafns Hafnarfjarðar.

„Svo verða ljósmyndabásar, heimarnir, leikir og sýningar, dansnámskeið, rúnaílestur – allt sem okkur dettur í hug og passar inn í Heimana okkar og fer vel við búningana,“ segir Unnur en undirbúningur fyrir hátíðina stendur nú sem hæst.

„Við ætlum að kenna fólki að búa til eigin saumagínur, skoða hvernig sögulegir kjólar og málmbrynjur eru gerðar, og svo er auðvitað Cosplay og brúðugerð,“ nefnir hún sem viðburði á hátíðinni.

Hátíð sem fagnar fjölbreytninni

Heimar og himingeimar er hátíð fyrir öll sem hafa gaman af búningum, leikjum og ævintýraheimum. Þar mætast meðal annars kvikmyndabúningar, fantasíulörp, söguleg endursköpun, japanskt cosplay, leikmunagerð og skylmingar af ýmsu tagi. Markmið hátíðarinnar er að upphefja jákvæða og þroskandi leikjahegðun fyrir fólk á öllum aldri.

Á síðustu hátíð mátti meðal annars sjá geimskip og R2-D2-vélmenni úr Star Wars, DeLorean-tímaflökkunarbílinn úr Back to the Future og fjölda litríkra persóna úr ólíkum leikja- og ævintýraheimum. Margir gestir komu aftur og aftur og húsið iðaði af lífi alla helgina.

„Það búa ævintýri í okkur öllum, og við lítum á það sem okkar skildu að hætta aldrei að leika okkur,“ segir Unnur.

Ábendingagátt