Þingmenn Suðvesturkjördæmis heimsóttu Hafnarfjörð

Fréttir

Þingmenn Suðvesturkjördæmis heimsóttu Hafnarfjarðarbæ í dag í kjördæmaviku frá Alþingi. Bæjarfulltrúar, starfsmenn sem og þrjú úr ungmennaráði tóku á móti hópnum.

Fundað á glænýju bókasafninu

Þingmenn Suðvesturkjördæmis heimsóttu Hafnarfjarðarbæ í dag í kjördæmaviku frá Alþingi. Hópurinn hittist í nýju húsnæði Bókasafns Hafnarfjarðar í Firði. Þar ræddu þingmennirnir uppbyggingu bæjarins og samgöngumál við bæjarfulltrúa.

Þrír fulltrúar úr ungmennaráði okkar sátu fundinn og fylgdust með. Þau voru sammála um að fundur sem þessi væri mikilvægur fyrir ungt fólk og að þau vildu gjarnan sitja oftar við borðið. Hafnarfjarðarbær er barnvænt samfélag – sem þýðir umræða um börn með börnum.

Miklar vinsældir bókasafnsins

Sigrún Guðnadóttir, forstöðumaður bókasafnsins, leiddi þingmenn um nýja húsnæðið. Hún sagði frá auknum vinsældum safnsins, en rúmlega 20 þúsund heimsóknir voru skráðar í ágúst. Þá sló hátíðin Heimar og himingeimar í byrjun september aðsóknarmet en um 12 þúsund mættu. Hún var þá haldin í þriðja sinn.

Þórður Þórarinsson bæjarstjóri og fulltrúar meirihlutans kynntu framtíðarsýn fyrir Flensborgarhöfn og Óseyrarsvæðið. Farið var yfir áherslur við fyrirhugaða uppbyggingu og aukin tengsl miðbæjarins við höfnina. Þar er meðal annars gert ráð fyrir opnum svæðum og samfelldri gönguleið meðfram hafnarbakkanum, þar sem mannlíf og hafnarstarfsemi fara saman.

Lóðaúthlutanir aftur á skrið

Einnig var rætt um það hvernig lóðaúthlutanir hafa tekið kipp eftir að reglum um greiðslur byggingar- og gatnagerðargjalda var breytt. En samningar síðustu tvo mánuði eru þegar fleiri en allan fyrri hluta ársins. Fulltrúar bæjarins lögðu jafnframt áherslu á mikilvægi vegaframkvæmda í Hafnarfirði.

Þingmönnum gefst tækifæri til að heimsækja sveitarfélög, fyrirtæki og stofnanir í kjördæmaviku. Þeir hitta íbúa og kynna sér þau mál sem brenna á fólki í kjördæmunum sínum. Heimsóknin gaf gott tækifæri til að kynna þingmönnum helstu áherslur Hafnarfjarðarbæjar í uppbyggingu og samgöngum.

Við þökkum þingmönnunum fyrir heimsóknina og gott samtal.

Ábendingagátt