Helgin: Tónlist, listir og skapandi samvera á hrekkjavöku

óflokkað

Útgáfutónleikar, skemmtisýning og gjörningur eru meðal þess sem er á dagskrá í Hafnarfirði um þessa hrekkjavökuhelgi. Ungir anime-aðdáendur hittast á Bókasafninu og í næstu viku taka við föndur, opinn leikskóli og hönnunarsmiðja.

Helgin er alltaf góð í Hafnarfirði

Útgáfutónleikar, skemmtisýning og gjörningur eru meðal þess sem er á dagskrá í Hafnarfirði um helgina. Ungir anime-aðdáendur hittast á Bókasafninu og í næstu viku taka við föndur, opinn leikskóli og hönnunarsmiðja.

Já, þetta er hrekkjavökuhelgin og víða er búið að skreyta. Hrekkjavökunni verður fagnað innan um hefðbundnari viðburði. Upplýst grasker setja til að mynda skemmtilegan svip á Hellisgerði.

Vinningshafar graskeraskurðarins frá síðustu helgi verða svo tilkynntir á hrekkjavökunni sjálfri, laugardaginn 31. október. Tilvalið að fara í rölt og njóta stemningarinnar í garðinum. Við hvetjum ykkur einnig til að skoða hverfasíður á Facebook og sjá hrekkjavökuplönin.

Björk Níelsdóttir syngur svo um margs konar ást á hádegistónleikum í Hafnarborg á þriðjudag! Má teygja helgina þangað? Ó, já, við fögnum góðum stundum á hverjum degi hér í Hafnarfirði.

Anime á Bókasafninu

Animeklúbbur Bókasafns Hafnarfjarðar hittist laugardaginn 31. október milli kl. 15–17. Klúbburinn er ætlaður 14–16 ára ungmennum sem hafa áhuga á anime og vilja hitta aðra með sama áhugamál. Horft er, lesið, leikið og ýmislegt brallað saman.

Gjörningur í Hafnarborg

Haustsýningu Hafnarborgar, spássíunni, lýkur sunnudaginn 1. nóvember. Gjörningur verður fluttur í tilefni þess kl. 16 í tengslum við verk Gabi Schillig, mjúkar eftirmyndir / bergmál rýmis. Íris Ásmundar og Sara Lind Guðnadóttir kanna þar samband líkama, efnis og rýmis. Þetta er tilvalið tækifæri til að sjá sýninguna áður en henni lýkur.

Stórir draumar í Ægi

SúEllen fagnar útgáfu fimmtu hljómplötu sinnar, Stórir draumar, með útgáfutónleikum í Ægi 220 í kvöld, föstudagskvöldið 30. október kl. 20. Ný lög og eldri perlur verða á efnisskránni og færeyski tónlistarmaðurinn Marius Ziska verður sérstakur gestur kvöldsins.

Sundferð gerir helgina enn betri

Sundsprettur, samvera og slökun í heitum potti gera allar helgar betri. Ásvallalaug og Suðurbæjarlaug taka á móti sundgestum alla helgina og frítt er fyrir börn 17 ára og yngri.

  • Ásvallalaug er opin kl. 8–18 á laugardag og kl. 8–17 á sunnudag.
  • Suðurbæjarlaug er opin kl. 8–18 á laugardag og kl. 8–21 á sunnudag.
  • Sundhöll Hafnarfjarðar er lokuð um helgar.

Listir, saga og notaleg stund á safni

Söfn bæjarins bjóða líka upp á góðar stundir um helgina. Hafnarborg tekur á móti gestum kl. 12–17 bæði laugardag og sunnudag og aðgangur er ókeypis.

Byggðasafn Hafnarfjarðar gefur okkur tækifæri til að skyggnast inn í sögu bæjarins. Pakkhúsið, Sívertsens-hús og Beggubúð eru opin kl. 11–17 báða dagana. Aðgangur er ókeypis og öll velkomin.

Bókasafnið í Firði er svo opið kl. 11–17 bæði laugardag og sunnudag. Tilvalið að finna góða bók og njóta stundarinnar saman.

Leikur og föndur í upphafi vikunnar

Nú færum við okkur inn í nýja viku. Svo margt er í boði hér í Hafnarfirði.

Opni leikskóli Memmm verður með samveru á Bókasafninu milli kl. 12–14 mánudaginn 2. nóvember. Stundirnar eru ætlaðar þeim sem eru heima með börn á aldrinum 0–5 ára. Þar gefst færi á leik, söng og að kynnast öðrum fjölskyldum. Skráning er óþörf. Opni leikskólinn verður einnig á sínum stað fimmtudaginn 5. nóvember kl. 10–12.

Síðar á mánudeginum, kl. 16–18, er boðið í föndurstund í listasmiðjunni í Önnustofu. Allur efniviður er á staðnum og gestir geta komið og látið sköpunargleðina ráða för.

Margs konar ást í þriðjudagshádegi

Björk Níelsdóttir sópran verður gestur Antoníu Hevesi píanóleikara á hádegistónleikum Hafnarborgar þriðjudaginn 3. nóvember kl. 12. Yfirskrift tónleikanna er Margs konar ást og á efnisskránni eru aríur úr óperum og óperettum eftir Mozart, Puccini, Massenet og Herbert.

Tónleikarnir standa í um hálftíma og aðgangur er ókeypis. Húsið opnar kl. 11.30 og við hvetjum ykkur öll til að koma og njóta stundarinnar.

Frá hugmynd að eigin búningi

Sauma- og hönnunarsmiðjan Kit/Cosplay verður svo á Bókasafninu þriðjudaginn 3. nóvember kl. 17–18.45. Þar geta áhugasöm unnið að sögulegum búningum, cosplay eða eigin fatnaði með aðstoð leiðbeinanda.

Saumavélar og verkfæri eru á staðnum en þátttakendur koma með eigin efnivið og hugmyndir. Smiðjan hentar ekki ungum börnum.

 

Ábendingagátt