Hafnfirsk ungmenni kveikja á bláu hjarta í Firði

Barnvænt sveitarfélag Fréttir

Hafnfirsk ungmenni kveikja á bláu hjarta í verslunarmiðstöðinni Firði klukkan 18 í dag, á Alþjóðadegi barna. Starfsfólk ráðhúss Hafnarfjarðarbæjar fagnaði deginum strax í morgun og gekk saman milli bláu hjartanna við Strandgötu. Kíkjum á unga fólkið okkar í dag.

Blá hjörtu fyrir börnin okkar í dag

Hafnfirsk ungmenni kveikja á bláu hjarta í verslunarmiðstöðinni Firði klukkan 18 í dag, á Alþjóðadegi barna. Ungmennaráð Hafnarfjarðar stendur að viðburðinum ásamt UNICEF á Íslandi og Jólaþorpinu. Dagskráin hefst klukkan 17 og stendur til klukkan 20.

Starfsfólk ráðhúss Hafnarfjarðarbæjar fagnaði deginum strax í morgun og gekk saman milli bláu hjartanna við Strandgötu. Það styður réttindi barna og vinnur með þeim.

Bláu hjörtun minna okkur á rétt barna til að láta í sér heyra og hafa áhrif á það sem gerist í bænum þeirra. Hjartað í Hellisgerði verður líka blátt í tilefni dagsins.

Má eitthvað betur fara í bænum?

Börn og ungmenni horfa á bæinn frá sjónarhorni sínu og í dag fá þau nýja leið til að deila hugmyndum sínum. Nýr QR-kóði verður kynntur á hátíðinni í Firði. Börn geta skannað hann með símanum sínum og sagt bænum hvað þau myndu vilja gera betur hér í Hafnarfirði.

Af hverju 20. nóvember?

Dagsetningin 20. nóvember markar tvenn tímamót í sögu barna. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti yfirlýsingu um réttindi barna 20. nóvember 1959. Sléttum þrjátíu árum síðar, 20. nóvember 1989, samþykkti þingið Barnasáttmálann.

Barnasáttmálinn nær til þess sem skiptir börn máli í daglegu lífi. Börn eiga meðal annars rétt á að læra, leika sér og njóta verndar. Þau eiga líka rétt á að segja hvað þeim finnst um mál sem þau varða. Fullorðnum ber að hlusta og taka sjónarmið þeirra til greina.

Við erum afar lukkuleg með að Hafnarfjarðarbær er barnvænt samfélag. Kítku í Fjörð í dag.

Ábendingagátt