Sýningardagskrá LG 2026 í Jólabænum Hafnarfirði
Það verður nóg um að vera í miðbæ Hafnarfjarðar í nóvember og desember. Samhliða stemningunni í Jólaþorpinu býður Litla gallerí…
Mozart við kertaljós í Hafnarfjarðarkirkju 19.des. kl.21.00
Camerarctica heldur sína árlegu kertaljósatónleika í kirkjum nú rétt fyrir jólin.
Hópurinn hefur leikið ljúfa tónlist eftir Mozart í þrjátíu og eitt ár og þykir mörgum ómissandi að koma úr miðri jólaösinni inn í kyrrðina og kertaljósin í rökkrinu. Hópinn skipa að þessu sinni þau Ármann Helgason klarinettuleikari, Hildigunnur Halldórsdóttir og Bryndís Pálsdóttir fiðluleikarar, Svava Bernharðsdóttir og Guðrún Þórarinsdóttir víóluleikarar og Sigurður Haldórsson sellóleikari. Á dagskránni eru glæsileg verk eftir Mozart en það eru Kvartett fyrir klarinettu og strengi í B Dúr kv. 378 og Kvintett fyrir strengi í B Dúr kv. 174.
Að venju lýkur tónleikunum á því að Camerarctica leikur jólasálminn góða,” Í dag er glatt í döprum hjörtum” eftir Mozart.
Tónleikarnir verða í Hafnarfjarðarkirkju þriðjudagskvöldið 19. Des, í Kópavogskirkju miðvikudagskvöldið 20. desember, í Garðakirkju fimmtudagskvöldið 21. des og í Dómkirkjunni í Reykjavík föstudagskvöldið 22. des.
Tónleikarnir eru klukkustundarlangir og hefjast þeir allir klukkan 21.00. Aðgangseyrir er kr. 3500 og kr. 2500 fyrir nemendu, öryrkja og eldri borgara og frítt inn fyrir börn. Miðasala við innganginn og á Tix.is
Það verður nóg um að vera í miðbæ Hafnarfjarðar í nóvember og desember. Samhliða stemningunni í Jólaþorpinu býður Litla gallerí…
Jólahjarta Hafnarfjarðar á bak við Bæjarbíó opnar 19. nóvember. Komið og njótið samverunar á aðventunni í upphituðu tjaldi Happy Hour…
Komdu að njóta með okkur! Jólaþorpið í Hafnarfirði hefur fengið framúrskarandi viðtökur þetta árið. Stemningin hefur verið dásamleg. Jólaþorpið með…
Opið á Byggðasafninu frá kl. 11–17 alla laugardaga og sunnudaga fram að jólum! Byggðasafnið bíður upp á sykurpúða á priki…
Jólahelgar á Byggðasafni Hafnarfjarðar ✨🎄 Komdu og njóttu notalegrar jólastemningar á Byggðasafni Hafnarfjarðar í aðdraganda jóla. Um hverja helgi býður…
Þriðjudaginn 1. desember kl. 12 bjóðum við ykkur velkomin á síðustu hádegistónleika ársins í Hafnarborg en þá verður söngkonan Kristín…
Komdu að njóta með okkur! Jólaþorpið með fagurlega skreyttu hafnfirsku jólahúsunum eru fyrir löngu orðið landsþekkt fyrir ýmisskonar spennandi gjafavöru,…
Ævintýraleg fjölskyldusýning á Bókasafni Hafnarfjarðar, innblásin af íslenskum álfasögum, þar sem bækur lifna við, frumsamin tónlist ómar og hafið geymir…
Aðventuhátíð 2026 Sunnudaginn 6. Desember kl. 14:00 Aðgangseyrir kr. 3.500,- Allur ágóði rennur til boðunarstarfs kirkjunnar bodun.is – s. 555…
Jólahelgar á Byggðasafni Hafnarfjarðar ✨🎄 Komdu og njóttu notalegrar jólastemningar á Byggðasafni Hafnarfjarðar í aðdraganda jóla. Um hverja helgi býður…