Sigurvegarar í Söngkeppni Hafnarfjarðar 2024
Fulltrúar Mosans og Hraunsins sigruðu í Söngkeppni félagsmiðstöðva Hafnarfjarðar sem haldin var í Bæjarbíói miðvikudaginn 20. mars. Sigurvegararnir tryggðu sér keppnisrétt í söngkeppni Samfés sem haldin verður í Laugardalshöll laugardaginn 4. maí.
Hæfileikarríkir söngvarar skinu skært í Bæjarbíói
Hjörleifur Daði Oddsson og Birna Lára Sigurðardóttir frá félagsmiðstöðinni Hrauninu og Sara Karabin frá félagsmiðstöðinni Mosanum deildu fyrsta sætinu í Söngkeppni Hafnarfjarðar. Þau Hjörleifur og Birna Lára fluttu lagið When I Was Your Man með Bruno Mars en Sara Karabin söng Back to Black með Amy Winehouse. Söngkeppni Hafnarfjarðar var haldin um miðja síðustu viku í Bæjarbíói. Afar hæfileikaríkur hópur hafnfirskra ungmenna steig á svið.
11 fulltrúar í níu atriðum
Níu atriði voru flutt og tóku 11 söngvarar þátt. Ísól Eyja Brown frá félagsmiðstöðinni Núinu varð í 2. sæti með lagið Stay með Rihönnu. Sonja Laura Krasko frá félagsmiðstöðinni Mosanum varð í 3. sæti og söng lagði The Villan I Appear To Be með Connor Spiotto. Dómnefndina skipuðu Sigga Ózk söngkona, Anna Lovísa Þorláksdóttir, tómstundafræðingur og grunnskólakennari, og Katrín Hildur Jónasdóttir, söngkona og meðlimur í Rokkkór Íslands.

Bæði atriðin í 1. sæti komast áfram í söngkeppni Samfés. Sú afar vinsæla keppni verður haldin í Laugardalshöll laugardaginn 4. maí.
- Karen Hrönn Guðjónsdóttir frá félagsmiðstöðinni Ásinum með lagið Íslensk kona í útgáfu Guðrúnar Árnýjar.
- Hrafnhildur Björk Ragnarsdóttir frá félagsmiðstöðinni Hrauninu með lagið Born to be alive með Bee and her Business.
- Sara Karabin frá félagsmiðstöðinni Mosanum með lagið Back to Black með Amy Winehouse.
- Hjörleifur Daði Oddsson og Birna Lára Sigurðardóttir frá félagsmiðstöðinni Hrauninu með lagið When I was your man með Bruno Mars.
- Áróra Sif Rúnarsdóttir og Dögun Oddsdóttir frá félagsmiðstöðinni Núinu með lagið Halleluja í útgáfu Alexandra Burke.
- Elísabet Benný Kristófersdóttir frá félagsmiðstöðinni Verinu með lagið Djúp sár gróa hægt með Bríeti.
- Ísól Eyja Brown frá félagsmiðstöðinni Núinu með lagið Stay með Rihanna.
- Sólrún Eva Hannesdóttir frá félagsmiðstöðinni Mosanum með lagið Ho hey með The Lumineers.
- Sonja Laura Krasko frá félagsmiðstöðinni Mosanum með lagið The Villan I Appear To Be með Connor Spiotto.
Innilega til hamingju öll. Við hlökkum til að fylgjast með Samfés!