Þétt helgardagskrá – Eitthvað fyrir okkur öll!
Víkingahátíð, listasýningar, spjall um list og lestur á pólsku. Helgin er troðfull af gullmolum.
Viðburðarík helgi er framundan í Hafnarfirði. Látum okkur nú sjá!
Víkingahátíð í Hafnarfirði 13.-18 júní.
Farðu aftur í tímann og upplifið hinn víkinglega anda! Á 28. Víkingahátíðinni í Hafnarfirði mætir fjöldi víkinga hvaðanæva að – meira en 150 víkingar frá Íslandi og erlendis taka þátt í þessari stórbrotnu fjölskylduhátíð.
Litla gallerý – Æviskeiðar – Heimir Snær Sveinsson
Sýning Heimis Snæs Sveinssonar er opin alla helgina og einnig 17. júní. Á sýningunni eru verk sem miðla hugmyndum um tengingu undirmeðvitundar og umhverfisins.
- Opnunartímar um helgina:
Föstudagur 13. júní 13:00 – 18:00
Laugardagur 14. júní 13:00 – 15:00 - Nánar hér
Kit og Cosplay smiðja!
Czytanie na polanie | Lestur í skóginum
Biblioteka w Hafnarfjörður zaprasza wszystkie dzieci do wzięcia udziału w międzynarodowej akcji „Czytanie na polanie“ edycja 2025.
- j„Czytanie na polanie“ odbędzie się 14 czerwca , w godzinach od 13.00-15.00, w Hellisgerði w Hafnarfjörður.
- Widzieć
Í sátt við efni og anda – sýningarstjóraspjall
Aldís Arnardóttir, sýningarstjóri og forstöðumaður Hafnarborgar, leiðir gesti um sýninguna Í sátt við efni og anda, sem stendur yfir í Hafnarborg í sumar, þar sem litið er yfir langan og fjölbreyttan feril listamannsins Eiríks Smith. Þá er sýningin sett upp í tilefni af því að listamaðurinn hefði fagnað 100 ára afmæli í ár, hefði honum enst aldur.
- Laugardaginn 14. júní kl. 14
- Nánar hér
Og svo stóri fjölskyldudagurinn okkar, þjóðhátíðardagurinn á þriðjudag. Vá, hvað verður gaman.