Almyrkvi á sólu – Hamarinn og Ástjörn okkar svæði

Fréttir

Hamarinn og Ástjörn við Ásvelli verða svæðin sem vert er að safnast saman á þegar almyrkvi verður á sólu þann 12. ágúst næstkomandi. Hafnarfjarðarbær gefur öllum börnum sínum 17 ára og yngri sólmyrkvagleraugu. Þau má nálgast á söfnum bæjarins og í þjónustuverinu.

Almyrkvinn yndislegur í Hafnarfirði

Almyrkvi á sólu verður sjáanlegur á Íslandi miðvikudaginn 12. ágúst. Þetta verður í fyrsta sinn frá árinu 1433 sem hægt að upplifa almyrkvann hér á höfuðborgarsvæðinu. Þar áður var hann árið 1330!

Hafnfirsk börn, 17 ára og yngri, fá sólmyrkvagleraugu á Byggðasafni Hafnarfjarðar, Hafnarborg og í þjónustuveri bæjarins að Strandgötu 8-10. Hægt verður að upplifa almyrkvann í allt að 68 sekúndur hér í Hafnarfirði. Við veðjum á Hamarinn og Ástjörn sem staðina sem best er að safnast saman á. Við bendum einnig á að söngkonan Björk verður á Víðistaðatúni með hátíðina Echolalia ásamt Smekkleysu. Þar verða ríflega sex þúsund manns saman komin.

Vertu viðbúin og njóttu frá upphafi

Ferlið hefst síðdegis og stendur í um tvær klukkustundir. Almyrkvinn sjálfur varir í um eina mínútu á höfuðborgarsvæðinu. Búist er við að heildartíminn verði 1 mínúta og átta sekúndur hér á Völlunum, 65 sekúndur í Norðurbænum og 63 sekúndur í Setberginu og Áslandi, samkvæmt síðunni solmyrkvi2026.is
Staðsetning Lengd almyrkva Deildarmyrkvi hefst Almyrkvi hefst Hámark Almyrkva lýkur Deildarmyrkva lýkur
Hafnarfjörður – Norðurbær / Holt 1 mín. 5 sek. 16:47:20 17:48:22 17:48:55 17:49:27 18:47:46
Hafnarfjörður – Miðbær 1 mín. 6 sek. 16:47:20 17:48:22 17:48:55 17:49:28 18:47:47
Hafnarfjörður – Vellir 1 mín. 8 sek. 16:47:21 17:48:22 17:48:56 17:49:30 18:47:48

Almykvinn er einstakur viðburður, því næsti er 26. maí árið 2245! Sá mun vara í 47 sekúndur, eða skemur en þessi sem nú verður.

Hafnarfjarðarbær hvetur íbúa til að njóta þessarar einstöku stundar í heimabæ sínum, velja þann stað sem best hentar og njóta augnabliksins í nærumhverfinu. Búast má við aukinni umferð á höfuðborgarsvæðinu þar sem margir leggja leið sína á vinsæla útsýnisstaði. Hafnarfjarðarbær hvetur íbúa til að ganga, hjóla eða nýta almenningssamgöngur þegar því verður við komið.

Við hlökkum til að upplifa þessa ógleymanlegu náttúruupplifun.

Lestu meira um sólmyrkvann

Ábendingagátt