Bíll án númera, bíll án heimilis?
Númeralaus ökutæki sem standa á götum, bílastæðum og öðrum svæðum í eigu Hafnarfjarðarbæjar er sívaxandi vandamál. Slík ökutæki geta valdið óþægindum, dregið úr aðgengi og öryggi og haft áhrif á ásýnd nærumhverfisins. Hafnarfjarðarbær fer reglulega markvisst yfir opinber svæði þar sem númeralaus ökutæki hafa verið skilin eftir.
Númeralaus ökutæki eru vaxandi vandamál
Númeralaus ökutæki sem standa á götum, bílastæðum og öðrum svæðum í eigu Hafnarfjarðarbæjar er sívaxandi vandamál. Slík ökutæki geta valdið óþægindum, dregið úr aðgengi og öryggi og haft áhrif á ásýnd nærumhverfisins. Ef þú átt ökutæki sem er ekki í notkun, hvetjum við þig til að færa það á viðeigandi geymslustað eða ganga frá því samkvæmt reglum.
Stæði eru fyrir ökutæki í notkun
Hafnarfjarðarbær fer reglulega markvisst yfir opinber svæði þar sem númeralaus ökutæki hafa verið skilin eftir. Ef númeralaust ökutæki finnst á götu, bílastæði eða öðru svæði í eigu bæjarins er sett kurteis áminning á ökutækið þar sem eiganda er gefinn 7 daga frestur til að bregðast við og fjarlægja það. Ef ökutækið er ekki fjarlægt innan frestsins er það fjarlægt á kostnað eiganda, í samræmi heimild í Lögreglusamþykkt Hafnarfjarðar.
Á einkalóðum
Þegar númeralaus ökutæki eru staðsett á einkalóðum, svo sem við fjölbýlishús eða á lóðum fyrirtækja, er það á ábyrgð lóðarhafa eða eigenda að grípa til viðeigandi aðgerða. Hafnarfjarðarbær hefur ekki heimild til að fjarlægja ökutæki af einkalóðum nema við sérstakar aðstæður. Við hvetjum húsfélög og aðra lóðareigendur til að ræða málið við eiganda ökutækisins og leita lausna ef þörf krefur.
Allar ábendingar vel þegnar
Við þökkum íbúum fyrir samstarfið. Með sameiginlegu átaki getum við stuðlað að snyrtilegra, öruggara og aðgengilegra umhverfi fyrir okkur öll og að öll svæði og stæði séu í virkri og viðeigandi notkun. Hægt er að senda ábendingu um númeralausa bíla á lóðum og svæðum bæjarins í gegnum ábendingagátt: Ábendingagátt Hafnarfjarðarbæjar | Senda ábendingu
