Bíllausi dagurinn í dag – Frítt í strætó

Fréttir

Ekkert gjald er greitt fyrir ferðir með strætisvögnum í dag. Ástæðan er bíllausi dagurinn í samstilltu átaki sveitarfélaga í Evrópskri samgönguviku.

Bíllausin dagurinn – Frítt í strætó

Bíllausi dagurinn er í dag 22. september og er frítt í strætó í dag. Við hvetjum einstaklinga, fyrirtæki, félagsamtök, stofnanir og sveitarfélög til að taka þátt.

Borgir og bæir á Íslandi hafa frá árinu 2022 tekið þátt í samstilltu átaki sveitarfélaga í Evrópu um að ýta undir sjálfbærar samgöngur. Yfirskrift átaksins er Evrópsk Samgönguvika. Hún er haldin 16. – 22. september ár hvert.

Markmið vikunnar er að kynna íbúum í þéttbýli samgöngumáta sem allt í senn eru vistvænir, hagkvæmir og bæta heilsu fólks um leið og þeir hafa jákvæð áhrif á umhverfi og andrúmsloft.Frítt verður í strætó á höfuðborgarsvæðinu og með landsbyggðarvögnum í dag. Þema samgönguviku í ár er Samgöngur fyrir öll

Njótum strætó saman!

Ábendingagátt