Bretti, box, hestar eða badminton – Frístundamessa

Fréttir

Brettafélagið, Hnefaleikafélagið, Hestafélagið Sörli og Badmintonfélagið verða á Frístundamessunni. Frístundamessan verður haldin í íþróttahúsinu við Strandgötu laugardaginn 29. ágúst kl. 10–14.

Finnu réttu frístundina á Frístundamessunni

Já, börnin okkar leita oft lengi eftir því að finna bestu frístundina – þá frístund sem hentar þeim. Nú fá þau tækifæri til að kynnast mörgum þeirra á einu bretti. Markmiðið með fyrstu Frístundamessunni í Hafnarfirði er að stytta þeim leið. Frístundamessan verður haldin í íþróttahúsinu við Strandgötu laugardaginn 29. ágúst kl. 10–14.

Fimmtán félög kynna starfsemi sína. Oft þarf ekki mikinn búnað til að geta tekið þátt. Við kynnumst þremur í dag.

  • Brettafélag Hafnarfjarðar Hjá Brettafélagi Hafnarfjarðar geta börn og ungmenni stundað hjólabretti, snjóbretti og BMX og fengið að njóta sín á eigin forsendum. Um 350 iðkendur eru hjá félaginu. Hægt er að fá lánaðan búnað á hjólabretta- og BMX-æfingum en iðkendur þurfa eigin búnað á snjóbrettaæfingum. Nánari upplýsingar eru á heimasíðu brettafélagsins og Instagram-síðu félagsins.
  • Hnefaleikafélag Hafnarfjarðar Hnefaleikar efla meðal annars sjálfstraust, aga, styrk, þol, hraða og samhæfingu. Æfingarnar hjá Hnefaleikafélagi Hafnarfjarðar eru fjölbreyttar, krefjandi og skemmtilegar og um 120 iðkendur æfa hjá félaginu. Nánar má lesa um boxið á heimasíðu félagsins. Skráning fer fram í Abler en einnig má hafa samband í gegnum Facebook eða Instagram eða líta við á Suðurhellu 5. Nýskráðir iðkendur fá boxhanska og sippuband.
  • Badmintonfélag Hafnarfjarðar Badminton er hröð og skemmtileg íþrótt sem hentar fólki á öllum aldri. Hjá Badmintonfélagi Hafnarfjarðar er hægt að æfa á eigin forsendum, hvort sem markmiðið er að keppa eða njóta góðrar hreyfingar. Rúmlega 700 manns æfa hjá félaginu. Upplýsingar eru á heimasíðu félagsins en óska þarf eftir prufuæfingu með tölvupósti á bh@bhbadminton.is. Félagið lánar spaða og fjaðrabolta.
  • Hestamannafélagið Sörli Í Félagshúsi Sörla geta börn og ungmenni á aldrinum 9–18 ára kynnst ævintýraheimi íslenska hestsins án þess að eiga eigið hross. Þau læra að umgangast hesta og fara í reiðtúra en einnig er hægt að leigja pláss fyrir eigið hross. Rúmlega þúsund félagsmenn stunda hestaíþróttir á félagssvæði Sörla. Nánari upplýsingar fást heimasíðu Sörla. Iðkendur þurfa eigin hjálm og skó með hæl og mælt er með hlífðarbrynju.

Já, komdu og vertu með okkur!

Ábendingagátt