Ertu ungmenni með áhuga á ræktun, matvælagerð og matarsóun?

Fréttir

Ungmennahúsið Hamarinn leitar að 8 ungmennum á aldrinum 16-19 ára til þátttöku á vinabæjarmóti í Tartu í Eistlandi, 20.-25. maí næstkomandi.

Tartu

Viltu koma með okkur til Tartu í Eistlandi og ræða matarsóun, matvælagerð og ræktun?

Ungmennahúsið Hamarinn leitar að 8 ungmennum á aldrinum 16-19 ára, sem hafa áhuga á matarsóun, matvælagerð og ræktun, til að koma með okkur á vinabæjarmót í Tartu í Eistlandi, 20. – 25. maí næstkomandi.

Enginn ferðakostnaður fyrir þátttakendur, greitt verður fyrir flug, gistingu og uppihald.

Hér er gullið tækifæri í að þjálfa sig að fá hugmyndir, koma þeim í framkvæmd og á framfæri en síðast en ekki síst að kynnast öðru ungu fólki, frá hinum Norðurlöndunum, með svipuð áhugamál, hugmyndir og markmið.

Eina sem þú þarft að gera er að sækja formlega um með 300 orða greinargerð um af hverju þú telur mikilvægt að sporna gegn matarsóun og efla þekkingu ungs fólks á ræktun, matvælagerð og umhverfisvernd. Skila má greinargerðinni skriflega, á myndbandi, í hlaðvarpi eða hvaða sniði sem hentar þér á íslensku eða ensku.

Skila skal umsókninni fyrir 11. mars, á netfangið mgm@hafnarfjordur.is.

Hægt er að nálgast allar frekari upplýsingar hjá Möggu Gauju í síma 664 5551 og mæla sér mót við hana í Hamrinum.

Vinabæi Hafnarfjarðar má finna um víða veröld

Hafnarfjarðarbær á tíu vinabæi um víða veröld. Vinabæirnir í norrænu vinabæjarkeðjunni hittast reglulega á vinabæjarmótum sem haldin eru annað hvert ár. Mótin samanstanda af uppákomum æskulýðs-, íþrótta og menningarhópa frá bæjunum auk ráðstefna og málþinga um hin ýmsu sameiginlegu málefni norrænu bæjanna. Nánari upplýsingar um vinabæi Hafnarfjarðar má finna hér.

Ábendingagátt