Fjölmenningarlegur sumarfögnuður við Víðistaðatún
Á hverju sumri koma fjölskyldur af fjölbreyttum uppruna saman til að fagna verkefninu, Uppskera, með fjölskylduvænni samveru í matjurtagörðunum við Víðistaðatún.
Sumarfögnuður Uppskeru
Á hverju sumri koma fjölskyldur af fjölbreyttum uppruna saman til að fagna verkefninu, Uppskera, með fjölskylduvænni samveru í matjurtagörðunum við Víðistaðatún. Þar gefst þátttakendum tækifæri á að hittast, njóta góðrar samveru og veitinga sem og fagna þeim tengslum sem hafa myndast yfir sumarið.
Markmið viðburðarins er að fagna fjölmenningu og nýjum siðum jafnt sem gömlum. Með því að skapa vettvang þar sem fólk af ólíkum uppruna kemur saman í jákvæðu og opnu umhverfi styrkist samfélagið og rætur nýrra íbúa fá tækifæri til að vaxa – rétt eins og grænmetið í görðunum.
Rækta grænmeti og skapa tengsl
Uppskera (e. Growing Roots) er samfélagslegt verkefni sem Hafnarfjarðarbær og hjálparsamtökin GETA standa saman að. Verkefnið hefur nú verið haldið þrjú ár í röð og er hluti af Heilsubænum Hafnarfirði, sem vinnur að því að efla heilsu, vellíðan og virkan lífsstíl íbúa í bænum.
Markmið Uppskeru er að tengja saman fjölskyldur af ólíkum uppruna sem búa hér í Hafnarfirði. Þátttakendur fá úthlutaðan ræktunarreit í matjurtagörðunum við Víðistaðatún. Þar hjálpast þeir að við að rækta sitt eigið grænmeti yfir sumartímann undir handleiðslu garðyrkjufræðings og með stuðningi frá starfsmönnum og sjálfboðaliðum GETU.
Verkefnið snýst um meira en að rækta grænmeti. Það skapar rými fyrir ný vináttubönd, stuðlar að sjálfbærni, heilbrigðum lífsháttum og aukinni þátttöku í samfélaginu. Með reglulegum samverustundum er einnig unnið að því að draga úr félagslegri einangrun sem og styrkja og efla flóttafólk og umsækjendur um alþjóðlega vernd.
Nánar um verkefnið: Uppskera.
Nánar um GETA samtökin.
















