Fjölmiðlamiðstöð vegna jarðhræringa á Reykjanesi

Fréttir

Á föstudaginn var opnuð miðstöð fyrir fjölmiðlafólk sem er að fjalla um jarðhræringarnar í og við Grindavík. Með þessu er verið að bregðast við miklum áhuga erlendra fjölmiðla á að fjalla um atburðina, skapa þeim vinnuaðstöðu og tryggja gott upplýsingaflæði. Miðstöðin er staðsett á Hringhellu í Hafnarfirði og verður opin frá kl. 8-16 alla daga.

Á föstudaginn var opnuð miðstöð fyrir fjölmiðlafólk sem er að fjalla um jarðhræringarnar í og við Grindavík. Með þessu er verið að bregðast við miklum áhuga erlendra fjölmiðla á að fjalla um atburðina, skapa þeim vinnuaðstöðu og tryggja gott upplýsingaflæði.

Opin frá kl. 8-16 alla daga

Miðstöðin er fyrst og fremst ætluð erlendu fjölmiðlafólki en innlent fjölmiðlafólk er einnig velkomið. Ferðamálastofa í samvinnu við Íslandsstofu, SafeTravel og Almannavarnir mun sjá um rekstur og umsjón miðstöðvarinnar. Miðstöðin er staðsett á Hringhellu 9A, 2. hæð, 221 Hafnarfirði og verður opin frá kl. 8-16 alla daga. Í miðstöðinni verður vinnuaðstaða fyrir fjölmiðlafólk og viðvera starfsfólks frá Ferðamálastou og Íslandsstofu til að veita upplýingar. Stefnt er á að sérfræðingar eða fulltrúar á vegum stjórnvalda verði með viðveru í miðstöðinni í um klukkustund á hverjum degi til að svara spurningum. Nánari upplýsingar um það verða gefnar út síðar af Ferðamálastofu.

Ábendingagátt