Fjölgreindarleikar í Víðistaðaskóla Posted mars 12, 2015 by avista Í þessari viku standa yfir fjölgreindarleikar í Víðistaðaskóla en þá einkennir skólastarfið af verkefnum sem sjást ekki á hverjum degi í skólanum og reyna á mismundandi eiginleika og birta ólíka hæfileika. Á fjölgreindarleikum er brugðið á leik og líkami, sál og hugur virkjaður á margvíslegan hátt. Það er verið að kasta boltum, brjóta saman í […]
Stóra upplestrarkeppnin 13.mars kl. 15.00 i Hásölum Posted mars 11, 2015 by avista Því miður þurfti að fresta lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar sem vera átti í gær vegna veðurs. Nú hefur verið ákveðið að halda keppnina föstudaginn 13.mars kl. 15.00 í Hásölum. Á hátíðinni munu nemendur í 7. bekk, sem valdir hafa verið á hátíðum í grunnskólunum lesa brot úr skáldverki og ljóð. Að lokum mun dómnefnd velja þrjá […]
17. júní skemmtiatriði – auglýst eftir skemmtiatriðum Posted mars 11, 2015 by avista Þjóðhátíðarnefnd auglýsir eftir skemmtiatriðum á 17. júní. Í dagskránni er gert ráð fyrir barna og fjölskylduskemmtunum á Thorsplani, leiktækjum og ýmsum sýningum og götuuppákomum í miðbænum. Vinsamlega sendið inn hugmyndir að allskonar atriðum og uppákomum á framkvæmdastjóra 17. júní Geir Bjarnason geir@hafnarfjordur.is eða skriflega til Hafnarfjarðarbæjar, Strandgötu 6, 220 Hafnarfjörður merkt 17. júní. Tekið verður […]
Grenndarkynning á Suðurnesjalínu 2 Posted mars 10, 2015 by avista Landsnet hf sækir um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu Suðurnesjalínu 2 í Hafnarfirði. Framkvæmdin er í samræmi við Aðalskipulag Hafnarfjarðar 2013-2025. Á fundi 24. febrúar 2015 fól Skipulags- og byggingarráð sviðsstjóra að senda erindið í grenndarkynningu ef Skipulagsstofnun mælti svo fyrir. Borist hefur umsögn Skipulagsstofnunar, sem mælir með því að framkvæmdin sé grenndarkynnt skv. 13. grein skipulagslaga […]
Hátíð Stóru upplestrarkeppninnar í dag frestað Posted mars 10, 2015 by avista Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar sem vera átti kl. 17 í dag í Hafnarborg er frestað sökum óveðurs sem nú gengur yfir bæinn. Ný dagsetning fyrir hátíðina tilkynnt síðar. Myndin er af sigurvegurum í fyrra ásamt skólastjórnendum sínum.
Ófærð í Hafnarfirði Posted mars 10, 2015 by avista Ófærð er um allan bæ en verst er þó ástandið á Völlum, Krýsuvíkurvegi, Áslandi, Setbergi og í Mosahlíð. Mjög slæmt skyggni er í bænum en samkvæmt veðurspá á að fara að rigna innan klukkutíma og þá um leið ætti skyggni að skána þannig að snjóruðningstæki geti hafið ruðning.
Stjórn Minningarsjóðs Helgu og Bjarna úthlutar styrkjum úr styrktarsjóði Posted mars 10, 2015 by avista Þrjú verkefni hlutu styrk úr Minningarsjóð Helgu og Bjarna við hátíðlega athöfn í safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju Hásölum á afmælisdegi Bjarna Snæbjörnssonar læknis 8. mars. Húsið – Ungmennahús fékk tvo styrki, Ísjakarnir sem er hópastarf með það að markmiði að tengja ungmenni af erlendum uppruna inn í samfélagið fékk 150 þúsund og Stuðboltarnir hópur ungmenna með fatlanir […]
Stóra upplestrarkeppnin Posted mars 9, 2015 by avista Á hátíðinni munu nemendur í 7. bekk, sem valdir hafa verið á hátíðum í grunnskólunum lesa brot úr skáldverki og ljóð. Að lokum mun dómnefnd velja þrjá bestu upplesarana og veita verðlaun. Auk þess koma fram ungir hljóðfæraleikarar og veitt verða verðlaun fyrir boðskortið og í smásagnasamkeppni sem efnt er til árlega í 8.-10. bekkjum […]
Velheppnaður starfsdagur dagforeldra Posted mars 9, 2015 by avista Föstudaginn 6. mars voru dagforeldrar í Hafnarfirði með starfsdag. Dagurinn var fullskipaður og byrjaði kl. 08:30 á aðalfundi. Aðalheiður Runólfsdóttir var kosinn formaður og til vara Sigríður Júlíusdóttir. Aðrir í stjórn voru kosnar Eyrún Gísladóttir gjaldkeri og Þóra Jónína Hjálmarsdóttir og Steinþóra Þorsteinsdóttir meðstjórnendur. Að aðalfundi loknum sóttu dagforeldrar fræðsluerindi í boði Hafnarfjarðarbæjar um stefnu […]
Spjaldtölvur í Áslandsskóla Posted mars 6, 2015 by avista Áslandsskóli hefur þegar hafið undirbúning að spjaldtölvuvæðingu skólans. Skipulagsvinna er í fullum gangi og í gær fengu kennarar skólans sín Ipad tæki afhent. Framundan er fræðsla og kennsla á þessu mögnuðu tæki. Stefnt er að því að nemendur í 5.-10. bekk fái allir tæki í haust og að til staðar verði einnig bekkjartæki fyrir yngri […]